Fara í meginmál

Vörunúmer: FAB32LOR6

Smeg

Kæli- & frystiskápur - 50´s Retro Style

FAB skápar úr Retro 50´s línu Smeg heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun. Þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.

FAB 32 er rúmgóður, 197 cm á hæð og 60 cm á breidd. Skápurinn er með LED lýsingu og aðskildum kæli- og frystikerfum. NoFrost frysti þarf ekki að afþýða og 0°C skúffa hentar fullkomlega til þess að varðveita viðkvæm matvæli. Hurðarlamir eru staðsettar vinstra megin og skápurinn þar af leiðandi með vinstri opnun.

449.990 kr.

Sérpöntun

Kæli- & frystiskápur - 50´s Retro Style

Líflegir litir og ávalar línur mætast í glæsilegum retro tækjum 

Vörur úr Retro 50´s línu Smeg eru elskaðar út um allan heim. Þær eru ítölsk hönnun og framleiðsla, en innblástur línunnar og litaúrval má rekja til tísku tímabilsins um 1950. Hönnunin einkennist af ávölum línum, björtum litum, ásamt krómhúðuðu handfangi og logo. Þessi útlitseinkenni gefa tækjunum skemmtilegan stíl og karakter sem kemur vel út í hvaða rými sem er. 

Kæli- & frystiskápur - 50´s Retro Style

50´s skápur gæddur nýjustu tækni 

Stafrænt hitastig í kæli- og frystirými er hægt að stilla á notendavænu LED stjórnborði. FAB 32 skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum sem tryggir að engin loftskipti eigi sér stað á milli rýma. Þetta kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli þeirra og að matvæli þorni upp. Nákvæm elektrónísk hitastýring viðheldur stöðugu hitastigi í innanrými og blástursvifta tryggir jafna hringrásandi dreifingu kælingar. Auðvelt er að fullnýta skápinn þar af leiðandi og geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Skápurinn er með 0°C skúffu sem hentar fullkomlega til þess að varðveita viðkvæm matvæli eins og fisk, osta og kjöt. Bestu geymsluaðstæður fyrir ferskmeti, eins og ávexti, grænmeti og salat eru síðan í lokaðri grænmetisskúffu. Auk alls þessa tryggir NoFrost kælitækni langtíma ferskleika matvæla í frysti og hraðfrystihólf gerir þér kleift að frysta þiðinn mat án þess að draga frost úr öðrum vörum. 

Kæli- & frystiskápur - 50´s Retro Style

Kæliskápur fyrir þá sem hafa unun af tísku og hönnun 

Umtalsvert geymslurými er til staðar í FAB 32 skápnum og auðvelt að færa til hillur í honum til þess að aðlaga hann að persónulegum geymsluþörfum. Kælirýmið er vel upplýst með björtum LED súlum í sitthvorri hlið skápsins. Lýsingin tryggir að matvælin séu vel sýnileg hvar sem þau eru staðsett, sem auðveldar leit í fullhlöðnum skápnum. 50´s Retro skápar eru ekki aðeins hagnýtir, heldur eru þeir líka einstaklega fallegir. Nýtt stílfagurt innvols prýðir FAB 32 og er það fullkomið framhald af ytra byrði skápsins. Hárfínar retro sveigjur og fágaðar króm áherslur einkenna innvolsið og endurspegla klassískt retro 50´s útlit. FAB kæliskápar heilla alla þá sem hafa unun af tísku og hönnun, þeir geta sómað sér vel sem sjálfstæð mubla og má segja að skáparnir séu fyrir löngu orðnir að klassísku tískutákni.