Fara í meginmál

Vörunúmer: 15828

Jura

Jura kaffivél E6 (ED) Dark inox

Njóttu cappuccino í tveimur heimum kaffinautnar


JURA E6 er fjölhæf kaffivél sem opnar dyrnar að tveimur heimum kaffinautnar: Hot Brew fyrir klassíska kaffidrykki og Light Brew fyrir milda, léttbruggaða kaffidrykki við hitastig er tilbúið til drykkjar.


Vélin er búin Professional Aroma Grinder G2 kaffikvörn sem dregur fram einstakan ilm og ríkulega bragðtóna kaffibaunanna og tryggir framúrskarandi kaffigæði í hverjum bolla. Með Easy Cappuccino eiginleikanum er einfalt að útbúa ljúffenga kaffidrykki með mjólk, þar sem kaffi og mjólkurfroða mynda fullkomið jafnvægi. Vélin er einnig með sérstöku hólfi fyrir malað kaffi sem gerir meðal annars kleift að útbúa koffínlaust kaffi. E6 er einstaklega einföld í notkun með skýru og aðgengilegu stjórnborði, 3,5" litaskjá og möguleika á tengingu við J.O.E. appið. Með Coffee Timer* er hægt að hefja daginn á fullkomnum kaffibolla, þar sem vélin útbýr svart kaffi á fyrir fram ákveðnum tíma, ekki úr hylki heldur úr nýmöluðum kaffibaunum. Quality Assistant auðveldar viðhald vélarinnar og stuðlar að áreiðanlegri virkni og framúrskarandi kaffigæðum til lengri tíma. Kerfið veitir gagnlegar leiðbeiningar um umhirðu, minnir á að fylla á vatnstank og lætur þig vita hvenær er best að skipt aum vatnsfilter og fleira.


JURA E6 einkennist af tímalausum glæsileika. Hrein og fáguð hönnun, vönduð efni og nákvæmar línur skapa nútímalegt útlit þar sem form og notagildi fara fullkomlega saman. Útkoman er glæsileg kaffivél sem sómir sér vel í hvaða umhverfi sem er.


* Coffee Timer krefst Wi-Fi Connect V2 aukabúnaðar og J.O.E. appsins.


199.990 kr.

Ekki til á lager

Jura kaffivél E6 helstu eiginleikar 1 - Eirvík

Nákvæm mölun og tvær leiðir að fullkominni kaffinautn

Professional Aroma Grinder G2 kaffikvörnin tryggir nákvæma og jafna mölun sem dregur fram ríkulegan ilm og bragðtóna kaffibaunanna. E6 býður upp á tvær ólíkar leiðir til að njóta kaffis: hefðbundið Hot Brew fyrir kröftuga og bragðmikla kaffidrykki og Light Brew léttbruggun fyrir mildara kaffi sem er strax tilbúið til drykkjar. Uppáhelling léttbruggaðra drykkja er við 60°C, sem gefur kaffinu mildan ilm og mjúkt, fágað bragð sem minnir á kaffi sem kemur úr kaffivélum með filter.

Jura kaffivél E6 helstu eiginleikar 2 - Eirvík

Mjólkurfroða og heitt vatn

Hvort sem þú kýst cappuccino, latte macchiato eða macchiato tryggir Easy Cappuccino eiginleikinn fullkomið jafnvægi milli kaffis og mjólkurfroðu. Veldu uppáhaldsdrykkinn þinn, snúðu rofanum og njóttu kaffis með fínni og silkimjúkri mjólkurfroðu. Sérstakur stútur fyrir heitt vatn eykur enn á fjölhæfni vélarinnar. Auðvelt er að setja hann á eftir þörfum og hann skilar heitu vatni hratt og á jafnan hátt – tilvalið fyrir te og aðra heita drykki.

Jura kaffivél E6 helstu eiginleikar 3 - Eirvík

Einföld og þægileg notkun

JURA E6 er einstaklega einföld í notkun þökk sé 3.5" litaskjá og skýru og aðgengilegu viðmóti. Mismunandi litir fyrir Hot Brew og Light Brew auðvelda aðgreiningu og val á kaffidrykkjum. Sex hnappar við hlið skjásins veita skjótan aðgang að helstu aðgerðum án þess að þurfa að fara í gegnum mörg skref. Með J.O.E. appinu er hægt að útbúa kaffidrykki beint úr símanum og vista persónulegar stillingar. Coffee Timer* býður jafnframt upp á möguleikann að tímastilla kaffivélina þannig að hún útbúi svart kaffi, nákvæmlega á þeim tíma sem óskað er. Quality Assistant auðveldar þrif og viðhald með skýrum leiðbeiningum sem stuðla að góðu hreinlæti og áreiðanlegri virkni vélarinnar.

* Til að nýta eiginleika J.O.E. appsins, til að mynda Coffee Timer, þarf Wi-Fi Connect V2 aukabúnað sem þarf að kaupa aukalega.

Jura kaffivél E6 helstu eiginleikar 4 - Eirvík

Tímalaus hönnun

E6 byggir á grannri og fágaðri hönnun hinnar vinsælu E-línu, þar sem glæsilegt útlit og framúrskarandi notagildi fara saman. Hreinar línur og samræmd form undirstrika tímalausan karakter vélarinnar, þar sem kaffinautnin er ávallt í fyrirrúmi. Krómhúðuð smáatriði gefa vélinni glæsilegan blæ og gera hana að fáguðu augnayndi í hvaða umhverfi sem er.