Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0151809

Elica

INTERSTELLAR

INTERSTELLAR eyjuháfur frá Elica er úr ryðfríu stáli og með kúpli úr 1152 glerjum. Háfurinn er fágaður, nettur og hangir í vírum niður úr loftinu. Umhverfislýsing með birtudeyfi skín út frá háfnum og falleg LED lýsing skín einnig niður á helluborðið. Háfurinn er hringrásandi, með jaðarsogi og nettu stjórnborði með snertitökkum. Einföld og þægileg fjarstýring fylgir með.

Hönnun: FABRIZIO CRISÀ

799.990 kr.

Sérpöntun

INTERSTELLAR

Einstök lýsing og vandað efnisval 

INTERSTELLAR er einstaklega fallegur eyjuháfur úr skínandi burstuðu stáli og með kúpli úr 1152 glerjum. Háfurinn er hannaður af FABRIZIO CRISÀ og kemur innblásturinn frá STAR, einum af upprunalegu EVOLUTION háfunum frá Elica. Lýsing spilar lykilhlutverk og er hvað mest einkennandi fyrir háfinn. Umhverfislýsing með birtudeyfi skín út frá háfnum og myndar samspil ljóssins og glerjanna dásamlega birtu sem skapar einstakt andrúmsloft í rýminu. Mjög falleg LED lýsing skín einnig niður á helluborðið undan stílhreinum glerskildi sem felur filtera og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Eftirtektarverður háfur með sterkan persónuleika sem verður auðveldlega í brennidepli í eldhúsinu.

INTERSTELLAR

Hangandi háfur fyrir opin rými 

Samhliða vinsældum opinna rýma þar sem eldhús eru tengd við setustofu, hefur orðið vinsælla að setja upp háfa sem skyggja sem minnst á útsýnið. INTERSTELLAR hangir í vírum niður úr loftinu, er mjög léttur á að líta og sómir sér þar af leiðandi mjög vel uppsettur yfir helluborði á eyju í eldhúsinu. Ekki spillir fyrir hversu hljóðlátur háfurinn er og einkar ánægjulegt að geta átt samræður í nágrenninu við hámarks sogkraft án þess að háfurinn ónáði. Háfurinn er hringrásandi, stjórnborð með snertitökkum er einfalt í notkun og fjórar aflstillingar í boði. Fjarstýring sem stýrir öllum stillingum háfsins fylgir auk þess með, til þægindaauka.

INTERSTELLAR

Jaðarsog og LongLife kolafilter

Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar.  INTERSTELLAR er með jaðarsogi og eru filterar staðsettir fyrir ofan stílhreinan glerskjöld. Aðgengi að bæði fitufilterum úr áli og LongLife kolafilterum er einfalt, auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafiltera má endurnýta með því að þrífa þá í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.

INTERSTELLAR

Alþjóðleg verðlaun

INTERSTELLAR eyjuháfur hlaut IDA Design Awards og fékk eftirfarandi ummæli: "Algjör stjarna í rýminu. Þessi ljósakrónu gufugleypir skapar töfrandi andrúmsloft, með 1152 strendingum úr gleri sem líkt og kristallar leika sér að ljósi og litum".