
Einstök lýsing og vandað efnisval
INTERSTELLAR er einstaklega fallegur eyjuháfur úr skínandi burstuðu stáli og með kúpli úr 1152 glerjum. Háfurinn er hannaður af FABRIZIO CRISÀ og kemur innblásturinn frá STAR, einum af upprunalegu EVOLUTION háfunum frá Elica. Lýsing spilar lykilhlutverk og er hvað mest einkennandi fyrir háfinn. Umhverfislýsing með birtudeyfi skín út frá háfnum og myndar samspil ljóssins og glerjanna dásamlega birtu sem skapar einstakt andrúmsloft í rýminu. Mjög falleg LED lýsing skín einnig niður á helluborðið undan stílhreinum glerskildi sem felur filtera og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Eftirtektarverður háfur með sterkan persónuleika sem verður auðveldlega í brennidepli í eldhúsinu.

Hangandi háfur fyrir opin rými
Samhliða vinsældum opinna rýma þar sem eldhús eru tengd við setustofu, hefur orðið vinsælla að setja upp háfa sem skyggja sem minnst á útsýnið. INTERSTELLAR hangir í vírum niður úr loftinu, er mjög léttur á að líta og sómir sér þar af leiðandi mjög vel uppsettur yfir helluborði á eyju í eldhúsinu. Ekki spillir fyrir hversu hljóðlátur háfurinn er og einkar ánægjulegt að geta átt samræður í nágrenninu við hámarks sogkraft án þess að háfurinn ónáði. Háfurinn er hringrásandi, stjórnborð með snertitökkum er einfalt í notkun og fjórar aflstillingar í boði. Fjarstýring sem stýrir öllum stillingum háfsins fylgir auk þess með, til þægindaauka.

Jaðarsog og LongLife kolafilter
Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar. INTERSTELLAR er með jaðarsogi og eru filterar staðsettir fyrir ofan stílhreinan glerskjöld. Aðgengi að bæði fitufilterum úr áli og LongLife kolafilterum er einfalt, auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafiltera má endurnýta með því að þrífa þá í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.
-bd47d184.jpg&w=3840&q=100)
Alþjóðleg verðlaun
INTERSTELLAR eyjuháfur hlaut IDA Design Awards og fékk eftirfarandi ummæli: "Algjör stjarna í rýminu. Þessi ljósakrónu gufugleypir skapar töfrandi andrúmsloft, með 1152 strendingum úr gleri sem líkt og kristallar leika sér að ljósi og litum".
