Fara í meginmál

Vörunúmer: KWT7112IGB

Miele

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggður vínkæliskápur frá Miele í sama útliti og innbyggðir Miele ofnar. Skápurinn er með mjúklokun og höldulausri glerhurð með svörtum ramma sem opnast þegar ýtt er létt á hana. Hann tekur mest 18 Bordeaux flöskur, er 45 cm á hæð og með LED lýsingu. Vínkæliskápurinn getur hentað jafnt sem neyslu- og geymsluskápur. Hann er með einu hitasvæði og hitastig þess er stillanlegt frá +5°C til +20°C. Vínkæliskápar frá Miele verja vín gegn útfjólubláum geislum, viðhalda réttum hita- og rakaskilyrðum auk þess sem bestu skilyrði á lofti eru tryggð með kolafilter sem dregur í sig óæskilega lykt, sé hún til staðar í korktöppum.

814.990 kr.

Sérpöntun

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

FlexiFrame Plus

Heldur flöskum af öllum stærðum og gerðum á öruggan hátt

Mögulegt er að staðsetja vín, jafnvel stórar flöskur, fullkomlega í útdraganlegu hillunum. Einstökum viðarspýtum er hægt að endurraða sérstaklega innan rammanna bæði langsum og þversum. Þar af leiðandi er hægt að koma flöskum með stóru þvermáli fyrir örugglega, t.d. stórum magnum flöskum.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

UV vörn

Fallegt og verndar dýrmæt vín

UV geislar geta valdið efnahvörfum í víni. Glerhurð vínkæliskápsins er úr lituðu öryggisgleri með innbyggðri vörn gegn útfjólubláum geislum. Vínið þitt, sem er geymt í vínkæliskápnum, fær þar af leiðandi hámarks vörn gegn UV geislum.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

LED lýsing

Gefur umhverfinu fallegan blæ

Innfelld LED lýsing varpar fallegu ljósi á vínflöskurnar. Viðhaldsfrí LED ljósin tryggja áhrifaríka lýsingu á innihald vínkæliskápsins. LED ljósin hita auk þess ekki upp loftið inni í tækinu, sem leiðir til þess að vínið þitt geymist ótruflað við bestu mögulegu aðstæður.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

DynaCool

Fullkomnar aðstæður fyrir geymslu matvæla og víns

Blástursvifta knýr kalda loftið í hringrás inni í vínkæliskápnum og tryggir þar með jafnt hita- og rakastig alls staðar í innanrými skápsins. Þetta tryggir jöfn og fullkomin geymsluskilyrði fyrir vínið þitt. Rakastig í kringum 70% kemur einnig í veg fyrir að korktappar þorni

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

SoftClose

Mjúklokun dyra

Dyrnar á vínkæliskápnum eru með SoftClose mjúklokun. Þær lokast þar af leiðandi hljóðlega og varlega eins og af sjálfsdáðun. Innbyggðir hurðardemparar varna því að vínflöskurnar verði fyrir miklum titringi ef dyrunum er lokað harkalega. SoftClose eiginleikinn lokar auk þess dyrum vínkæliskápsins sjálfkrafa ef dyrnar standa opnar sem nemur minna en 30° horni. Þetta tryggir örugg geymsluskilyrði fyrir vínið þitt án hættu á röskun.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

Push2Open

Fullkomin lausn fyrir höldulausar innréttingar

Vínkæliskápurinn er með Push2Open hurðaropnun og opnast dyrnar líkt og af sjálfsdáðun. Opnun er virkjuð með léttum þrýstingi á glerhurðina. Dyrnar opnast varlega og gera þér kleift að koma fingrum á milli stafs og hurðar til þess að opna dyrnar alla leið. Vínkæliskápar með Push2Open þurfa ekki handföng og passa fullkomlega inn í hvers kyns höldulaus eldhús og rými.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

Virkur AirClean kolafilter

Veitir áhrifaríka vörn gegn óæskilegri lykt    

Matvæli þurfa að geymast í umhverfi sem er ekki bara kalt heldur einnig lyktarlaust. Það sama á líka við geymslu á vínum og þar er lausnin virkur Miele AirClean filter. Ný samsetning virkra kola og kítósans, náttúrulegs efnis, kemur í veg fyrir því sem næst alla óæskilega lykt í kælirýminu. Auðvelt er að setja filterinn í skápinn og um leið og honum hefur verið komið fyrir er hann tilbúinn til notkunar.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux

Geymsla með lágmarks titringi 

Sérhannað með geymslu víns í huga

Miele vínkæliskápar eru útbúnir sérstökum íhlutum sem gera varlega geymslu viðkvæmra vína mögulega. Pressa vínkæliskápsins er bæði afskaplega hljóðlát og er gangur hennar mjög mjúkur. Hún er aftengd frá húsi vínkæliskápsins og tryggir þar af leiðandi fullkomnar geymsluaðstæður með lágmarks titringi fyrir vínið þitt.