Fara í meginmál

Vörunúmer: WKEES553

Liebherr

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux - GrandCru

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggður GrandCru vínkæliskápur frá Liebherr með innfelldu handfangi og LED lýsingu. Skápurinn tekur mest 18 Bordeaux flöskur, er með glerhurð með ryðfríum ramma og er 45 cm á hæð. Vínkæliskápurinn getur hentað jafnt sem neyslu- og geymsluskápur. Hann er með einu hitasvæði og hitastig þess er stillanlegt frá +5°C til +20°C. Vínkæliskápar frá Liebherr verja vín gegn útfjólubláum geislum, viðhalda réttum hita- og rakaskilyrðum auk þess sem bestu skilyrði á lofti eru tryggð með virkum kolafilter sem dregur í sig óæskilega lykt.

439.990 kr.

Sérpöntun

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux - GrandCru

Innbyggður vínkæliskápur með framhlið

Samræmt heildarútlit í eldhúsinu fæst með innbyggðum vínkæliskápum frá Liebherr sem samlagast eldhúsinnréttingunni einstaklega vel. Skáparnir varpa fallegu LED ljósi á vínflöskurnar og eru með vandaðri glerhurð sem veitir bestu mögulegu yfirsýn yfir þær. Fullkomin geymsluskilyrði auk vandaðrar og fallegrar framsetningar sameinast í innbyggðum vínkæliskápum frá Liebherr.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux - GrandCru

Víngeymsluskápur

Við réttar geymsluaðstæður halda vín áfram að þroskast í flöskum. Hægar efnabreytingar eiga sér stað við þroskann sem mynda flóknari bragð- og ilmefni í vínunum og ná þau einnig meiri dýpt. Góð og stöðug geymsluskilyrði eru forsenda farsællar langtímageymslu. Víngeymsluskápar frá Liebherr bjóða upp á sömu geymsluskilyrði vína og fyrirfinnast í vínkjöllurum. Skáparnir halda mjög stöðugu og nákvæmu hitastigi í öllu innanrými sem gerir þá að fullkomnum kosti fyrir langtímageymslu og þroskun vína.

Vínkæliskápur, 312 Bordeaux - GrandCru - Sýningareintak

GrandCru

GrandCru og Vinothek vínkæliskápar bjóða upp á sömu skilyrði og fyrirfinnast í vínkjöllurum. Mögulegt er að stilla hitastig í innanrými frá +5°C til +20°C eftir þörfum, sem gerir skápana að fullkomnum kosti fyrir langtímageymslu og þroskun víns. Völdu hitastigi er haldið fullkomlega jöfnu og stöðugu í öllu innanrými vínkæliskápsins. Auk langtímageymslu á fjölbreyttum gerðum vína, henta GrandCru og Vinothek skápar einnig einstaklega vel til þess að geyma mikið magn af einni víngerð við kjörhitastig til neyslu. 

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

LED lýsing 

Falleg LED lýsing er í innanrými vínkæliskápsins sem tryggir jafna birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma. Lýsingin er auk þess dimmanleg og gefur afskaplega fallega umhverfislýsingu.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Útdraganlegar hillur á brautum

Vínkæliskápurinn er með gegnheilum viðarhillum sem sitja á útdraganlegum brautum. Hillurnar henta einstaklega vel til þess að geyma Bordeaux flöskur á öruggan hátt, veita bæði góða yfirsýn og þægilegt aðgengi. Hillurnar eru handgerðar úr ómeðhöndluðum við og mögulegt er að smella á þær merkimiðum sem veita þér skýra yfirsýn yfir vínsafnið þitt.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Nákvæm hitastýring 

Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hitaskilyrði. Kjörhitastig fyrir þroska víns er það sama hjá öllum víntegundum, hvort sem um ræðir rauðvín eða hvítvín, og liggur á milli +10°C og +12°C. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugara hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis sveiflist mjög mikið. Að auki er þéttikanntur á milli kælisvæða sem tryggir að hvert einasta kælisvæði er með fullkomlega aðskildri og sjálfstæðri hitastjórnun.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Fullkomið rakastig

Rétt rakastig er lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Í vínkæliskápnum eru fullkomin rakaskilyrði, það er 50%-80%, sem tryggir góða öndun gegnum rakann korktappa víns á meðan þroskun þess fer fram.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Lágmarks titringur og UV- vörn 

Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring sem tryggir bestu mögulegu geymsluskilyrði víns. Litað glerið í vínkæliskápnum veitir síðan nauðsynlega vörn gegn útfjólubláum geislum.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Virkur kolafilter

Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Hægt að snúa hurðaropnun

Vínkæliskápurinn kemur staðlað hægri hengdur, það er með hurðarhjörunum hægra megin. Mögulegt er að snúa hurðaropnuninni og hafa skápinn vinstri hengdan, allt eftir því sem hentar þér og hvar staðsetja á skápinn.