Fara í meginmál

Vörunúmer: WKEGB582

Liebherr

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux - GrandCru

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Stórglæsilegur innbyggður GrandCru vínkæliskápur frá Liebherr. Skápurinn er með mjúklokun og höldulausri glerhurð með svörtum ramma sem opnast þegar ýtt er létt á hana. Hann tekur mest 18 Bordeaux flöskur, er 45 cm á hæð og með LED lýsingu. Vínkæliskápurinn getur hentað jafnt sem neyslu- og geymsluskápur. Hann er með einu hitasvæði og hitastig þess er stillanlegt frá +5°C til +20°C. Vínkæliskápar frá Liebherr verja vín gegn útfjólubláum geislum, viðhalda réttum hita- og rakaskilyrðum auk þess sem bestu skilyrði á lofti eru tryggð með virkum kolafilter sem dregur í sig óæskilega lykt.

549.990 kr.

Sérpöntun

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux - GrandCru

Innbyggður vínkæliskápur með framhlið

Samræmt heildarútlit í eldhúsinu fæst með innbyggðum vínkæliskápum frá Liebherr sem samlagast eldhúsinnréttingunni einstaklega vel. Skáparnir varpa fallegu LED ljósi á vínflöskurnar og eru með vandaðri glerhurð sem veitir bestu mögulegu yfirsýn yfir þær. Fullkomin geymsluskilyrði auk vandaðrar og fallegrar framsetningar sameinast í innbyggðum vínkæliskápum frá Liebherr.

Innbyggður vínkæliskápur, 18 Bordeaux - GrandCru

Víngeymsluskápur

Við réttar geymsluaðstæður halda vín áfram að þroskast í flöskum. Hægar efnabreytingar eiga sér stað við þroskann sem mynda flóknari bragð- og ilmefni í vínunum og ná þau einnig meiri dýpt. Góð og stöðug geymsluskilyrði eru forsenda farsællar langtímageymslu. Víngeymsluskápar frá Liebherr bjóða upp á sömu geymsluskilyrði vína og fyrirfinnast í vínkjöllurum. Skáparnir halda mjög stöðugu og nákvæmu hitastigi í öllu innanrými sem gerir þá að fullkomnum kosti fyrir langtímageymslu og þroskun vína.

Vínkæliskápur, 312 Bordeaux - GrandCru - Sýningareintak

GrandCru 

GrandCru og Vinothek vínkæliskápar bjóða upp á sömu skilyrði og fyrirfinnast í vínkjöllurum. Mögulegt er að stilla hitastig í innanrými frá +5°C til +20°C eftir þörfum, sem gerir skápana að fullkomnum kosti fyrir langtímageymslu og þroskun víns. Völdu hitastigi er haldið fullkomlega jöfnu og stöðugu í öllu innanrými vínkæliskápsins. Auk langtímageymslu á fjölbreyttum gerðum vína, henta GrandCru og Vinothek skápar einnig einstaklega vel til þess að geyma mikið magn af einni víngerð við kjörhitastig til neyslu. 

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

LED lýsing 

Falleg LED lýsing er í innanrými vínkæliskápsins sem tryggir jafna birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og óhætt er þar af leiðandi að baða vínflöskurnar í ljósinu í lengri tíma. Lýsingin er auk þess dimmanleg og gefur afskaplega fallega umhverfislýsingu. 

Vínkæliskápur til innbyggingar undir borðplötu, 34 Bordeaux - Vinidor

TipOpen 

TipOpen snertitækni gerir þér kleift að fella vínkæliskápinn á fullkominn hátt inn í höldulausar innréttingar. Þegar ýtt er á hurðina, opnast dyrnar sjálfkrafa um 7 cm sem veitir þægilegt aðgengi. Dyrnar lokast síðan aftur sjálfkrafa með SoftSystem mjúklokun ef þær er ekki opnaðar að fullu á næstu 3 sekúndum.

Innbyggður vínkæliskápur, 83 Bordeaux - Vinidor

Mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðinni, dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað og tryggir þannig að hurðin lokist varlega. Hurðin lokast að sjálfsdáðun ef opnun er minni en u.þ.b. 45° hjá frístandandi skápum eða minni en u.þ.b. 30° hjá innbyggðum skápum.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Nákvæm hitastýring 

Til þess að vín geti þroskast á fullkominn hátt þarf það að geymast við stöðug og jöfn hitaskilyrði. Kjörhitastig fyrir þroska víns er það sama hjá öllum víntegundum, hvort sem um ræðir rauðvín eða hvítvín, og liggur á milli +10°C og +12°C. Vínkæliskápurinn er bæði með öflugri blástursviftu og nákvæmri elektrónískri hitastýringu sem heldur stöðugara hitastigi í skápnum en hefðbundið thermostat, jafnvel þó að hitastig umhverfis sveiflist mjög mikið. Að auki er þéttikanntur á milli kælisvæða sem tryggir að hvert einasta kælisvæði er með fullkomlega aðskildri og sjálfstæðri hitastjórnun.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Fullkomið rakastig

Rétt rakastig er lykilþáttur fyrir farsæla langtímageymslu víns. Vínflöskur ætti almennt alltaf að geyma í láréttri stöðu til þess að korktapparnir haldist rakir innan frá, en rakastig í umhverfi er ekki síður mikilvægt. Í vínkæliskápnum eru fullkomin rakaskilyrði, það er 50%-80%, sem tryggir góða öndun gegnum rakann korktappa víns á meðan þroskun þess fer fram.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Lágmarks titringur og UV- vörn 

Vægur titringur getur truflað þroska víns og komið í veg fyrir botnfall tanníns. Sérþróuð pressa vínkæliskápsins gefur frá sér algjöran lágmarks titring sem tryggir bestu mögulegu geymsluskilyrði víns. Litað glerið í vínkæliskápnum veitir síðan nauðsynlega vörn gegn útfjólubláum geislum.

Vínkæliskápur, 211 Bordeaux - Vinidor

Virkur kolafilter

Lykt úr umhverfi getur haft áhrif á þroska víns sem er geymt í lengri tíma. Hámarks loftgæði eru til staðar í vínkæliskápnum þökk sé skilvirkri lofthringrás og virkum kolafilter sem dregur í sig alla óæskilega lykt. Loftgæði eru mjög mikilvæg fyrir þroskun og varðveislu víns.