Fara í meginmál

Vörunúmer: ERBDI9971

Liebherr

Innbyggður kæliskápur með vatnsvél & BioFreshPlus (b:91cm) - Monolith

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Monolith er næsta kynslóð heimiliskælitækja. Gríðarlegt afrek í kælitækni með uppsöfnuðum tækninýjungum sem spanna yfir 60 ára tímabil þökk sé þýsku verkfræðiviti. Monolith skáparnir eru 213,4 cm háir og taka matargeymsluskilyrði á nýjan stað. BioFreshPlus skúffur, innbyggð vatnsvél, Infinity LED lýsing, snertiskjár, öflug hringrásarkæling og snjallsímaforrit er brot af því sem tækin bjóða uppá. Stórglæsileg tæki og vandað efnisval að innanverðu.

Sérpöntun

Fá tilboð
Innbyggður kæliskápur með vatnsvél & BioFreshPlus (b:91cm) - Monolith

Monolith – innbyggður kæliskápur án framhliðar

Monolith skápar tilheyra næstu kynslóð fullinnbyggðra kæli- og frystiskápa. Þýskt verkfræðivit ásamt uppsöfnuðum tækninýjungum seinustu 60 ára hafa sett ný viðmið í kælitækni með Monolith skápum. Liebherr hefur lengi verið brautryðjandi í þróun hágæða kælitækja. Kælitækin frá þeim eru þekkt fyrir þróuð geymsluskilyrði matvæla, sveigjanleika í hönnun, hámarks orkunýtni og þægindi við notkun. Efnisval er vandað og eru skáparnir framleiddir í samræmi við hæstu alþjóðlegu gæðastaðla. Mögulegt er að setja innréttingarframhlið framan á Monolith skápana og mynda fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Innréttingarframhliðin er hengd og fest beint á framhlið skápsins með Hurð-á-Hurð uppsetningu. 

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

BioFresh-Plus skúffur

BioFresh tækni Liebherr tryggir fullkomnar geymsluaðstæður ferskmetis til lengri tíma. BioFresh-Plus skúffur eru hita- og rakastýrðar og bjóða upp á enn meiri sveigjanleika þegar kemur að geymslu matvæla. Ferskvara viðheldur vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur í skúffunum en í hefðbundnum kæliskáp. Efri tvær BioFresh skúffurnar er hægt að nota annað hvort sem DrySafe eða HydroSafe. DrySafe stilling hentar sérstaklega vel fyrir kjöt og osta, en hátt rakastig HydroSafe stillingar kemur í veg fyrir að grænmeti og ávextir þorni upp. Neðsta skúffa Monolith skápsins er BioFresh-Plus skúffa, en hitastig hennar er hægt að stilla frá 0°C til -2°C sem hentar fullkomlega fyrir geymslu fisks og skelfisks. BioFresh skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg. 

Innbyggður kæliskápur með vatnsvél & BioFreshPlus (b:75cm) - Monolith

Innbyggð InfinitySpring vatnsvél

Óaðfinnanlega innfelld InfinitySpring vatnsvél gerir þér kleift að nálgast vatn þegar þér hentar og er því sem næst ósýnileg þegar þú ert ekki að nota hana. Þægilegt aðgengi er að vatnsvélinni, en hún er staðsett framarlega í innanverðri hlið Monolith kæliskápsins í góðri hæð. Auðvelt er að fylla á vatnskönnur af ýmsum stærðum og skilar fullkomin síun fersku, hreinu og bragðgóðu vatni við hverja notkun.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

InfinitySwipe snertiskjár

Stjórnborð Monolith skápsins er staðsett bak við hurðina. 2.4" lita- og snertiskjárinn er allt í senn bjartur, hreinlegur og ótrúlega notendavænn. Þú þarft varla að lyfta fingri til þess að stýra allri virkni skápsins.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

Infinity LED lýsing

Óaðfinnanlega innbyggð InfinityLight veggljós í báðum hliðum varpa fallegum og jöfnum bjarma um allann Monolith skápinn. Þegar hurðin er opnuð eykst styrkur LED lýsingarinnar mjúklega og hægt er að stilla ljósstyrkinn eftir þörfum hvers og eins. Fáguð InfinityBeam ljósasúla lýsir niður á allar BioFresh skúffurnar. Auðvelt er að sjá hvaða matvæli eru í skúffunum þegar þær eru lokaðar og þegar BioFresh skúffurnar eru opnaðar lýsir ljómandi LED ljósasúlan matvælin algerlega upp. Infinity LED lýsingin er ekki bara áhrifamikil og flott, heldur er hitamyndun í algjöru lágmarki sem tryggir bestu mögulegu geymsluaðstæður matvæla.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

PowerCooling

Kæliskápurinn er með blástursviftu sem tryggir hraðvirka kælingu ferskra matvæla. Hringrásandi dreifing kælingar er tekin skrefinu lengra í Monolith skápum þar sem henni er einnig veitt á bak við hurðina. Þar af leiðandi haldast matvælin sem eru geymd í hurðinni alveg jafn köld eins og matvæli sem geymd eru annars staðar í skápnum.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

SoftSystem mjúklokun

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. Hurðarhjarir Monolith skápa eru sterkbyggðar og geta borið allt að 40 kg.*

*burðargeta breytileg eftir stærð Monolith skáps.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

FlexSystem skipulagskerfi

FlexSystem er sveigjanlegt skipulagskerfi sem er einfalt í notkun. Notaðu skipulagskerfið til þess að flokka og aðskilja matvæli í uppáhalds BioFresh skúffunni þinni, t.d. aðskilja ávexti og grænmeti með greinilegum hætti eða geyma matvæli eftir því hvenær þau renna út.

Innbyggður kæliskápur með BioFreshPlus (b:60cm) - Monolith

Rúmgóðar hurðarhillur 

Nægt rými er til staðar í fáguðum hurðarhillum kæliskápsins, en hillurnar eru bæði gagnsæjar og hæðarstillanlegar til þægindaauka. Notaðu hurðarhilluna til þess að geyma stór gallon ílát og losaðu þannig um pláss í skápnum sjálfum til dæmis fyrir rúmfreka bakka með pinnamat eða stórar skálar með salati.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Premium

SuperCool hraðkæling

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta sem hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Hraðkæling varðveitir ferskleika, innsiglar bragð og viðheldur vítamínum og steinefnum í matvælum.