
Innbyggður kæliskápur með frystihólfi án framhliðar
Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.
%2520ICBND5163-9a93663f-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
BioFresh skúffur
BioFresh skúffur tryggja fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru. Matvælin eru geymd við hitastig rétt yfir 0°C og ákjósanlegt rakastig. Ferskvara viðheldur þannig vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. DrySafe skúffa hentar sérstaklega vel til þess að geyma kjöt, fisk og mjólkurvörur á meðan hátt rakastig í HydroSafe skúffu kemur í veg fyrir að ávextir og grænmeti þorni upp. BioFresh skúffurnar sitja á hálf útdraganlegum brautum, mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

4 stjörnu frystihólf með hillu
Fersk matvæli er hægt að frysta og geyma í langan tíma í 4 stjörnu frystihólfi. Hitastigi frystihólfsins er haldið stöðugu við -18°C eða minna og þar af leiðandi tryggt að matvælin viðhaldi öllum sínum vítamínum og steinefnum. Glerhilla úr hertu öryggisgleri er staðsett í miðju frystihólfinu sem hjálpar notandanum að fullnýta allt hólfið. Frosnu matvælin eru þannig sýnilegri og auðveldara að halda þeim í röð og reglu.

Snertiskjár
Snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

SoftSystem mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum.

LED lýsing
Skápurinn er með LED hliðarljósum sem lýsa innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Stílhreint innanrými
Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista á fremri brún. Ein hillan kemur í tveimur pörtum, hægt er að renna öðrum hluta hennar undir hinn og mynda grynnri hillu. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og fallegur ryðfrír listi er á plastslánum sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Nytsamleg flöskuhilla
Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Einstök þægindi
Hitastýring skápsins er elektrónísk og tryggir blásturvifta í kælirými jafna, hringrásandi dreifingu kælingar. Þar af leiðandi er hægt að fullnýta skápinn og geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. Auk þess er skápurinn einstaklega hljóðlátur.

SuperCool hraðkæling
Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
