Fara í meginmál

Vörunúmer: IRBAC5190-22 617

Liebherr

Innbyggður kæliskápur með BioFresh Professional, vatnsvél & AutoDoor - Peak

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Glæsilegur kæliskápur til innbyggingar úr Peak línu Liebherr. Dyr skápsins er hægt að opna með hefðbundnum hætti eða þannig að hún opnist sjálfvirkt. Þá getur notandinn valið á milli þess að opna dyrnar með raddskipun, snjalltæki eða með því að banka á hurðina sem er einstaklega hentugt fyrir höldulausar innréttingar. Þrjár BioFresh Professional skúffur með HydroBreeze eru í skápnum en þær tryggja lengri endingu ferskmetis. InfinitySpring vatnsvél gerir þér kleift að nálgast kalt drykkjarvatn hvenær sem er, falleg LED lýsing er í innanrými og hurðarlokun er mjúk. Skápurinn er vinstri hengdur.

929.990 kr.

Sérpöntun

Innbyggður kæliskápur með BioFresh Professional, vatnsvél & AutoDoor - Peak

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi án framhliðar 

Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi, BioFresh Professional & AutoDoor - Peak

AutoDoor - sjálfopnandi dyr

Handfrjáls valkostur: Mögulegt er að opna dyr Liebherr skápsins með því að banka á hurðina eða með raddskipun. Þessi tækni gerir Liebherr skápinn að þeim fyrsta í heimi sem hægt er að opna og loka algerlega sjálfvirkt sem er fullkomið fyrir höldulaus eldhús. Þú getur valið hversu margar gráður dyrnar opnast og hversu lengi þær haldast opnar. Og ef þörf krefur geturðu líka valið að opna og loka dyrunum á hefðbundin hátt með höndunum eða með snjallsímanum þínum.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með vatnsvél, klakavél & BioFresh Professional - Peak

BioFresh Professional skúffur með kaldri gufu 

Kældu eins og atvinnumatreiðslumaður. HydroBreeze myndar kalda gufu í efri BioFresh skúffunni. Þessi kalda gufa, ásamt 0°C hitastigi sem er í skúffunni, tryggir enn lengri endingu ferskmetis auk þess að skapa ósvikin og heillandi sjónræn áhrif. HydroBreeze virkjast á 90 mínútna fresti í 4 sekúndur í senn og í 8 sekúndur þegar hurðin er opnuð. Við Þessar fullkomnu geymsluaðstæður viðheldur ferskvara vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. BioFresh Professional skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með vatnsvél, klakavél & BioFresh Professional - Peak

Vatnsvél 

Innfelld InfinitySpring vatnsvél gerir þér kleift að nálgast ferskt og kalt vatn í skápnum þegar þér hentar. Aðgengi er mjög þægilegt, hún er staðsett í góðri hæð í innanverðri hliðinni og flæðir vatnið út þegar ýtt er á panelinn án þess að dropar leki út frá bununni. Auðvelt er að fylla á glös og vatnskönnur af ýmsum stærðum og skilar fullkomin síun vatnsfilters hreinu, bragðgóðu vatni við hverja notkun.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

Touch & Swipe snertiskjár 

TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. 

Innbyggður kæli- & frystiskápur með vatnsvél, klakavél & BioFresh Professional - Peak

Ótrúlega tilkomumikil og fullkomin LED lýsing 

LED ljós er staðsett hringinn í kringum blástursviftu í kælirými og myndar einstaklega fallega umhverfislýsingu. Tvær innfelldar ljósasúlur í sitthvorri hlið kælirýmis lýsa það upp á jafnan og fallegan hátt og LED ljós fyrir ofan BioFresh skúffur tryggir góða lýsingu niður á ferskmetið í skúffunum. Matvælin eru vel sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. Allsumlykjandi lýsing sem skapar einstaka upplifun þegar skápurinn er opnaður.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

Glæsilegt innanrými 

Fágaðir panelar úr ryðfríu stáli með SmartSteel yfirborði þekja bakhlið og innanverða hurð skápsins. Ryðfrítt stál er þrifalegt, öruggt fyrir matvæli og passar einkar vel í kælirýminu. Fullkomin hringrás lofts á sér stað á milli plastsins og SmartSteel panelsins í bakhliðinni, sem tryggir að ryðfríi panellinn helst þurr, raki flyst ekki yfir á matvöru og matvæli fjósa ekki við bakhliðina. Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista með satín áferð á fremri brún. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri með fallegum ryðfríum slám sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með vatnsvél, klakavél & BioFresh Professional - Peak

Flex system 

FlexSystem er sveigjanlegt skipulagskerfi sem er einfalt í notkun. Notaðu boxin til þess að flokka og aðskilja matvæli í uppáhalds BioFresh skúffunni þinni, t.d. aðskilja ávexti og grænmeti með greinilegum hætti eða geyma matvæli eftir því hvenær þau renna út. FlexSystem er auðvelt í þrifum og má fara í uppþvottavél.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél - Plus

Útdraganleg VarioSafe geymsluskúffa 

VarioSafe skúffan hjálpar til við skipulag í skápnum og veitir góða yfirsýn yfir hlutina sem þar eru geymdir. Útdraganlega skúffan er fullkominn staður til þess að geyma minni hluti, t.d. pinkla, túbur og krukkur. Mögulegt er að hæðarstilla geymsluskúffuna á tvo mismunandi staði og stjórna þannig dýpt hennar eftir hentugleika.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

VarioBox í hurð 

Auðvelt er að halda skipulagi á matvælum í hurð skápsins með tveimur VarioBox geymsluboxum.  Aðgengi er bæði öruggt og þægilegt, boxin eru útdraganleg með öryggisstoppi og þau er gagnsæ sem veitir notandanum fullkomna yfirsýn yfir innihaldið. Geymsluboxin henta einkar vel til þess að flokka og geyma lítil matvæli, annað boxið tekur 2/3 af hilluplássinu en hitt 1/3. Mögulegt er að fjarlægja boxin alveg úr hurðinni og þvo í uppþvottavél.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með vatnsvél, klakavél & BioFresh Professional - Peak

Nytsamleg flöskuhilla

Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh Professional - Peak

Einstök þægindi 

Hitastýring skápsins er elektrónísk og tryggir blásturvifta í kælirými jafna, hringrásandi dreifingu kælingar. Þar af leiðandi er hægt að fullnýta skápinn og geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. Skápurinn er auk þess einstaklega hljóðlátur þökk sé hljóðlátum pressum, ventlum, viftum og þéttum. 

Innbyggður kæliskápur með frystihólfi - Pure

SuperCool hraðkæling

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.