Fara í meginmál

Vörunúmer: ICBND5163

Liebherr

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Kæli- & frystiskápur til innbyggingar úr Prime línu Liebherr. Skápurinn er með klakavél, LED lýsingu, aðskildum kæli- og frystikerfum og mjúklokun. BioFresh skúffur tryggja lengri endingu ferskmetis og NoFrost frysti þarf ekki að affrysta.

769.990 kr.

Ekki til á lager

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Innbyggður kæli- og frystiskápur án framhliðar 

Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

BioFresh skúffur 

BioFresh skúffur tryggja fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru. Matvælin eru geymd við hitastig rétt yfir 0°C og ákjósanlegt rakastig. Ferskvara viðheldur þannig vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. DrySafe skúffa hentar sérstaklega vel til þess að geyma kjöt, fisk og mjólkurvörur á meðan hátt rakastig í HydroSafe skúffu kemur í veg fyrir að ávextir og grænmeti þorni upp. BioFresh skúffurnar sitja á mjúkum útdraganlegum brautum og eru með mjúklokun. Mögulegt er að draga skúffurnar alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja þær við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Prime

Klakavél 

Klakavélin framleiðir fullkomna klaka jafn óðum, toppar undirliggjandi skúffu og tryggir þar með nægt framboð. Hún er beintengd sem þýðir að vatnið kemur beint úr krananum. Klakaframleiðslu er hægt að auka með MaxIce stillingu og framleiða allt að 1,5 kg af klökum á sólarhring. Mögulegt er að stilla stærð klakaskúffunnar eftir hentugleika með færanlegu skilrúmi, en þannig má t.d. nota vinstri helming undir klaka og hægri undir ísbox eða alla skúffuna undir klaka. Hvort sem þig langar í kaldan drykk eða ætlar að halda stóra samkomu, tryggir klakavélin að ferskir og brakandi klakar eru til reiðu fyrir þig hvenær sem er.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

Touch & Swipe snertiskjár 

TFT lita- og snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

SoftSystem mjúklokun 

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. 

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

Mjög fullkomin LED lýsing 

Tvær innfelldar ljósasúlur í sitthvorri hlið kælirýmis lýsa það upp á jafnan og fallegan hátt og LED ljós fyrir ofan BioFresh skúffur tryggir góða lýsingu niður á ferskmetið í skúffunum. Innihald frystirýmis er auk þess vel upplýst með LED ljósi beint fyrir ofan frystiskúffurnar sem lýsir niður í þær. Matvælin eru vel sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis tryggðar.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

Glæsilegt innanrými 

Fágaður panell úr ryðfríu stáli með SmartSteel yfirborði þekur bakhlið skápsins. Ryðfrítt stál er þrifalegt, öruggt fyrir matvæli og passar einkar vel í kælirýminu. Fullkomin hringrás lofts á sér stað á milli plastsins og SmartSteel panelsins í bakhliðinni, sem tryggir að ryðfríi panellinn helst þurr, raki flyst ekki yfir á matvöru og matvæli fjósa ekki við bakhliðina. Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista með satín áferð á fremri brún. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri með fallegum ryðfríum slám sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

VarioBox í hurð 

Auðvelt er að halda skipulagi á matvælum í hurð skápsins með tveimur VarioBox geymsluboxum.  Aðgengi er bæði öruggt og þægilegt, boxin eru útdraganleg með öryggisstoppi og þau er gagnsæ sem veitir notandanum fullkomna yfirsýn yfir innihaldið. Geymsluboxin henta einkar vel til þess að flokka og geyma lítil matvæli, annað boxið tekur 2/3 af hilluplássinu en hitt 1/3. Mögulegt er að fjarlægja boxin alveg úr hurðinni og þvo í uppþvottavél.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Premium

Sveigjanlegt frystirými 

Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Innbyggður kæliskápur með BioFresh - Prime

Nytsamleg flöskuhilla

Skápurinn er með nytsamlegri flöskuhillu sem er staðsett fyrir ofan BioFresh skúffurnar. Mögulegt er að staðsetja flöskuhilluna bæði fyrir ofan og neðan glerhilluna. Þannig má nota hana annað hvort til þess að geyma flöskur eða sem venjulega hillu, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með EasyFresh & NoFrost - Pure

Einstök þægindi 

Skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum. Hitastýring er elektrónísk og hægt er að stilla svæðin óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Blástursvifta í kælirými tryggir jafna, hringrásandi dreifingu kælingar og að hægt sé að fullnýta skápinn með því að geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Auk alls sem er ofantalið er skápurinn einstaklega hljóðlátur. 

Innbyggður kæli- & frystiskápur með EasyFresh & NoFrost - Pure

SuperCool hraðkæling og SuperFrost 

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.