
Innbyggður kæli- og frystiskápur án framhliðar
Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur hægri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

EasyFresh skúffa
EasyFresh er skúffa í kælirými með stillanlegu loki. Mögulegt er að stjórna rakastigi í skúffunni með lokinu og þar með lengja endingu grænmetis og ávaxta. Skúffan er loftþétt þegar lok er í lokaðri stöðu sem, ásamt ferskmetinu sem þar er geymt, eykur rakastigið í skúffunni. Rakanum er síðan hleypt út með því að opna lokið. EasyFresh skúffan er hálf útdraganleg sem gerir skúffuna bæði þægilega í notkun og tryggir góðan sýnileika matvæla. Auðvelt er að fjarlægja skúffuna út úr skápnum við 90°hurðaropnun.

Snertiskjár
Snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðkælingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

LED lýsing
Skápurinn er með LED loftljósi sem lýsir innanrýmið upp á jafnan og fallegan hátt. Ljósið er staðsett fyrir miðju, fyrir framan glerhillurnar og tryggir þannig góða lýsingu niður allan skápinn. Matvælin eru sýnileg öllum stundum, hvar sem þau eru staðsett og því auðvelt að finna það sem leitað er að í fullhlöðnum skápnum. LED lýsing er sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí. Hitamyndun er í lágmarki og bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis þar með tryggðar.

Stílhreint innanrými
Hillur skápsins eru úr hertu öryggisgleri með fallegum ryðfríum öryggislista á fremri brún. Hurðarhillur eru einnig úr öryggisgleri og fallegur ryðfrír listi er á plastslánum sem varna því að matvara detti út úr þeim. Stillanlegt skilrúm er auk þess í flöskuhillu sem tryggir að flöskur og dósir haldast kyrrar á sínum stað. Auðvelt er að hæðarstilla allar hillur, jafnvel þegar matvæli eru til staðar og nægt rými er í skápnum til þess að setja bökunarplötu beint inn við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið veitir notandanum hámarks sveigjanleika og þægindi við notkun.

Sveigjanlegt frystirými
Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Einstök þægindi
Skápurinn er með tveimur nákvæmum og aðskildum kælikerfum. Hitastýring er elektrónísk og hægt er að stilla svæðin óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Blástursvifta í kælirými tryggir jafna, hringrásandi dreifingu kælingar og að hægt sé að fullnýta skápinn með því að geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirýminu. NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Auk alls sem er ofantalið er skápurinn einstaklega hljóðlátur.

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting
Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
