Fara í meginmál

Vörunúmer: ECBNE7871

Liebherr

Innbyggður kæli- & frystiskápur 76cm, klakavél & BioFresh

Liebherr tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Kæli- & frystiskápur til innbyggingar með hægri opnun. Skápurinn er með klakavél, LED lýsingu og aðskildum kæli- og frystikerfum. BioFresh skúffur tryggja lengri endingu ferskmetis og NoFrost frysti þarf ekki að afþýða.

1.539.990 kr.

Ekki til á lager

Innbyggður kæli- & frystiskápur 76cm, klakavél & BioFresh

Innbyggður kæli- og frystiskápur án framhliðar

Mögulegt er að setja innréttingarframhlið framan á kæli-og frystiskápinn og mynda fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Innréttingarframhliðin er hengd og fest beint á framhlið kæli- og frystiskápsins með Hurð-á-Hurð uppsetningu. 

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

BioFresh skúffur

BioFresh skúffur tryggja fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru. Matvælin eru geymd við hitastig rétt yfir 0°C og ákjósanlegt rakastig. Ferskvara viðheldur þannig vítamínum, ilmi, bragði og girnilegu útliti umtalsvert lengur en í hefðbundnum kæliskáp. BioFresh skúffurnar sitja á útdraganlegum brautum, mögulegt er að draga þær alveg út úr skápnum og auðvelt að fjarlægja við 90° hurðaropnun. Allt ofantalið gerir skúffurnar bæði þægilegar í notkun og tryggir að þau matvæli sem í þeim eru geymd eru vel aðgengileg og sýnileg.

SBS Kæli- & frystiskápur með klakavél & BioFresh - Premium

Klakavél 

Klakavélin framleiðir fullkomna klaka jafn óðum, toppar undirliggjandi skúffu og tryggir þar með nægt framboð. Ferskir og brakandi klakar eru til reiðu fyrir hvers kyns tilefni, hvort sem þig langar í kaldan drykk eða ætlar að halda stóra samkomu.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

NoFrost kælitækni

NoFrost kælitækni tryggir langtíma ferskleika matvæla. Matvælin eru fryst með kældu hringrásandi lofti og hvers kyns raki er knúinn út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Hvimleiðar afþýðingar tilheyra fortíðinni með þægilegri NoFrost kælitækni.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

DuoCooling

Tvö nákvæm og aðskilin kælikerfi eru í kæli- og frystihluta skápsins sem mögulegt er að stilla óháð hvoru öðru. Engin loftskipti eru á milli kælis og frystis sem kemur bæði í veg fyrir að lykt smitist á milli rýma og að matvæli þorni upp. Aðskildu kælirýmin gera þér einnig mögulegt að slökkva á kælirýminu á meðan frystirýmið er enn í gangi, sem hentar til dæmis einstaklega vel þegar farið er í sumarfrí.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

LED lýsing

Skápurinn er með mjög fullkominni innbyggðri LED lýsingu. Ljós er í lofti kælirýmisins, súlur í báðum hliðum, ljós í BioFresh skúffum og frysti. Ljósin skapa mjög fallega umhverfislýsingu inni í öllum skápnum, tryggja að matvæli séu auðsjáanleg og veita jafnri birtu um allan skápinn. Hitamyndun er í algjöru lágmarki, LED lýsingin gefur ekki frá sér útfjólubláa geisla og tryggir þar af leiðandi bestu mögulegu geymsluaðstæður ferskmetis. Auk þess er LED lýsingin sparneytin, umhverfisvæn og viðhaldsfrí.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

PowerCooling

Kæliskápar með blástursviftu kæla fersk matvæli allt að 50% hraðar en gerist í kæliskáp án blástursviftu. Jöfn hringrásandi dreifing kælingar, tryggir að hægt er að fullnýta skápinn og geyma matvæli hvar sem er inni í honum. Fresh Air kolafilter sem er innbyggður í blástursviftuna hreinsar hringrásandi loftið og eyðir óæskilegri lykt úr kælirými.

Kæli- & frystiskápur með BioFresh - Premium

GlassLine hillur

Hillur skápsins eru hæðarstillanlegar og auk þess er ein hillan í tveimur pörtum þannig að mögulegt er að renna öðrum helmingnum yfir hinn. Auðvelt er að færa hillurnar til og skapa þar með rými fyrir misháar flöskur og ílát, allt eftir persónulegum þörfum. Hillurnar eru búnar til úr hertu öryggisgleri, þær eru óbrjótanlegar, rispuþolnar og auðveldar í þrifum.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

SoftSystem mjúklokun á kælihluta

SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Tryggt er að hurðin lokist varlega, jafnvel þegar hún er fullhlaðin, sem kemur í veg fyrir að flöskur og krukkur detti út úr hillunum. Hurðin lokast af sjálfsdáðun ef opnun er minni en u.þ.b. 35° hjá frístandandi skápum eða minni en u.þ.b. 30° hjá innbyggðum skápum.

Innbyggður kæli- & frystiskápur með franskri opnun, klakavél & BioFresh - PremiumPlus

SuperCool hraðkæling og SuperFrost hraðfrysting

Stillingin SuperCool kemur aukinni kælingu af stað í kælirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig kælt á hraðvirkan máta og hentar til dæmis vel þegar skápurinn hefur verið hlaðinn eftir matarinnkaup. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í +2°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni. Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.