
Innbyggður frystiskápur án framhliðar
Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu. Skápurinn er til uppsetningar inni í innréttingu og nauðsynlegt að setja innréttingarframhlið framan á hann. Skápurinn kemur vinstri hengdur en mögulegt er að skipta um hurðaropnun.

Snertiskjár
Snertiskjár gerir notandanum kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. Raunhitastig aðskildra svæða er alltaf sýnilegt á skjánum. Þegar hitastillingum er breytt sýnir skjárinn bæði raunhitastig og það hitastig sem breytt er í. Auk hitastillinga getur notandinn stjórnað annarri virkni skápsins með vali á snertiskjánum, stillingum eins og til dæmis hraðfrystingu, viðvörunarbjöllum, o.s.frv. Mögulegt er að læsa skjánum með öryggislás og tryggja að börn og aðrir óviðkomandi geti ekki breytt stillingum skápsins óviljandi.

SoftSystem mjúklokun
SoftSystem mjúklokun veitir bæði aukið öryggi og þægindi. Búnaðurinn er innbyggður í hurðina og dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað.

Sveigjanlegt frystirými
Hillur úr hertu öryggisgleri eru á milli skúffa í frystirými. Mögulegt er að fjarlægja bæði skúffurnar og hillurnar á auðveldan hátt sem gerir VarioSpace rýmið einstaklega hagnýtt. Þannig má breyta samsetningu rýmisins og jafnvel koma stórum hlutum fyrir til geymslu.

Innbyggðar rennibrautir
Innbyggðar rennibrautir fyrir skúffur veita þægilegt aðgengi að matvælum öllum stundum. Innbyggt hak kemur í veg fyrir að skúffurnar falli út þegar þær eru opnaðar. Við lokun renna skúffurnar auðveldlega á sinn stað, sem tryggir fullkomna dreifingu lofts fyrir framan skúffurnar og því bestu mögulegu kælingu.

Bakki í frystiskúffu
Frystibakkinn hentar einstaklega vel til þess að frysta viðkvæm matvæli eins og ávexti, ber og jurtir. Með því að dreifa úr matvælunum á bakkanum er hægt að frysta þau hratt og án þess að þau kremjist. Þannig er tryggt að matvælin haldist fersk og brakandi eftir að þau hafa verið afþýdd. Auðvelt er að koma bakkanum fyrir í frystiskúffunni og fjarlægja hann aftur.

Einstök þægindi
NoFrost kælitækni dreifir kældu hringrásandi lofti um frystirýmið og knýr hvers kyns raka út úr tækinu. Frystirinn er þar af leiðandi alltaf frostfrír og geymslurýmið helst jafnstórt öllum stundum. Hitastýring er elektrónísk og skápurinn einstaklega hljóðlátur.

SuperFrost hraðfrysting
Stillingin SuperFrost kemur aukinni kælingu af stað í frystirými í takmarkaðan tíma. Ferskmeti er þannig fryst á hraðvirkan máta sem viðheldur vítamínum matvælanna, án þess að draga frost úr öðrum vörum í frystiskáp. Skápurinn kælir sig tímabundið niður í -32°C. Afturhvarf á fyrra hitastig er annað hvort tíma- eða magnstýrt í orkusparnaðarskyni.
