Fara í meginmál

Vörunúmer: DA2558

Miele

Innbyggð vifta í efri skáp

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggð vifta frá Miele fyrir 60 cm breiðan efri skáp. Viftan er úr ryðfríu stáli, með LED lýsingu og stjórnborði með þægilegum þrýstitökkum. Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli og má fara í uppþvottavél. Viftan sjálf er örugg og auðveld í þrifum. Hún er öflug eða 600 m3/h á booster stillingu og hægt er að nota hana bæði til útblásturs og hringblásturs. Hún er með Con@ctivity 3.0 (WLAN) samskiptatækni, en tæknin gerir það að verkum að viftan kveikir sjálfkrafa á sér þegar kveikt er á helluborðinu.

184.990 kr.

Sérpöntun

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Con@ctivity

Snjöll stjórnun

Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algjörlega að eldamennskunni. Þetta er vegna þess að háfurinn og helluborðið eiga í þráðlausum samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um aflstillingar sínar til háfsins, sem aðlagar sogkraft sinn sjálfkrafa eftir þeim og tryggir hámarks loftgæði öllum stundum. Samskiptin milli helluborðs og háfs er komið á annað hvort með ZigBee (Con@ctivity 2.0) eða WiFi (Con@ctivity 3.0).

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

CleanCover 

Auðveld og örugg þrif á innrarými

Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Fitufilter úr ryðfríu stáli

Fagurfræði og góð hönnun

Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli sem virkar frábærlega við að fjarlægja fitu. Innbyggð fallvörn tryggir örugga notkun og verndar helluborðið gegn skemmdum. Ystu lög og rammi filtersins eru úr hágæða ryðfríu stáli. Filterinn heldur hágæða útliti sínu í langan tíma og engin sjáanleg litabreyting verður á honum þegar hann er þrifinn í uppþvottavél.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Virkur AirClean kolafilter

Algerlega lyktarlaust eldhús

Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri getur þú notað virkan kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Þessum einnota filter þarf að skipta út reglulega.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Háfur heldur sogi áfram 

Lyktarlaust loft í eldhúsi

Alger hreinsun lofts næst með því að láta háfinn ganga áfram að eldun lokinni. Mögulegt er að stilla háfinn þannig að hann slökkvi sjálfvirkt á sér eftir 5 eða 15 mínútur.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Gaumljós fyrir filtera

Niðurtalning í augnsýn

Þegar fitufilter eða kolafilter Miele háfsins mettast, er það gefið til kynna með rauðu LED ljósi.  Fitufilter ætti þá að þrífa sem fyrst og skipta kolafilter út eins fljótt og mögulegt er. Þú getur aðlagað fyrirfram stillta tímalengd fyrir gaumljós filtera eftir þínum þörfum. Gaumljós fyrir mettun fitufilters er hægt að stilla milli 20, 30, 40 og 50 klukkutíma, gaumljós fyrir útskipti kolafilters er hægt að stilla milli 120, 180 eða 240 klukkutíma.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Öflugur, hágæða mótor

Sérstaklega öflugur

Háfurinn er með hágæða miðflótta viftu sem er með sogi á tveimur hliðum. Þessar öflugu einingar tryggja kraftmikil loftskipti öllum stundum auk hámarks sogkrafts. Viftan er þægilega lágvær, þrátt fyrir það hversu öflug hún er.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Handgert í Þýskalandi

Hver Miele háfur er einstakur

Næstum allir Miele háfar eru þróaðir og framleiddir í verksmiðju Miele í Arnsberg, Þýskalandi og eru fyrir mestan part handgerðir. Hver háfur er einstakur. Á hverju stigi framleiðslunnar er þörf fyrir ákveðna verkkunnáttu handverksfólks: allt frá því að móta stálið að því að sjóða það saman og slípa. Skuldbinding starfsfólks, kunnátta þeirra, sköpunarkraftur og löngun til að skara fram úr hefur haft mikil áhrif á þá stöðu sem Miele hefur á markaðinum í dag.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Öryggisvirkni 

Öryggið alltaf sett á oddinn

Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.