
EasyClick mjólkurtankur
Mjólkurtanki smellt auðveldlega á kaffivél
Þægileg tækninýjung: mjólkurflöskunni er smellt inn að framanverðu með afar auðveldum hætti og jafn auðvelt er að fjarlægja hana.
-min-32a28448-1400x788.jpg&w=3840&q=100)
Fullkomnir kaffidrykkir
Sönn upplifun fyrir bragðlaukana
Njóttu dásamlegra kaffidrykkja til fulls með hágæða innbyggðum Miele kaffivélum. Kaffivélin hellir upp á einstaklega arómatískt kaffi þökk sé bragðverndandi mölun og bragðaukandi foruppáhellingu. Hellt er upp á kaffidrykk strax að lokinni mölun og nýmalaðar baunir notaðar í hvern og einn drykk.

Auðveld í notkun
Notkun einstaklega þægileg
Snjallt og þægilegt: snertu einn takka og vélin hellir upp á uppáhalds kaffi- eða tedrykkinn þinn. Hæðaskynjari fyrir bolla, uppáhelling tveggja kaffidrykkja í einu og tímastillir eru allt eiginleikar sem gera innbyggðu Miele kaffivélina enn þægilegri í notkun.

Hæðaskynjari fyrir bolla
Alltaf rétt lengd frá kaffistútum að bolla
Fullkomin staðsetning: kaffivélin skynjar hæð kaffibollans þíns og staðsetur kaffistúta sjálfkrafa samkvæmt því. Fjarlægð frá bolla er stillanleg og mögulegt að lækka hana í 4 cm og hækka í 16,5 cm. Hæðaskynjarinn kemur í veg fyrir skvettur og tryggir þægindi við notkun mishárra bolla og glasa. BrilliantLight kastar síðan fallegri og mjúkri LED lýsingu á kaffibollann þinn til þess að kóróna uppáhellinguna.

ComfortClean
Fullkomin þrif í uppþvottavél
Með ComfortClean, gæti ekki verið auðveldara að þrífa kaffivélina: næstum alla einstaka hluta vélarinnar er hægt að þrífa í uppþvottavél, að meðtöldum vatnstanki, affallsbakka og tanki undir kaffikorg. Þetta tryggir hámarks hreinlæti og hjálpar til með að viðhalda virði kaffivélarinnar.

Kanna af kaffi
Þægilegt þegar gestir koma í heimsókn
Þarftu að búa til kaffi fyrir marga í einu? Snertu einn takka á innbyggðu Miele kaffivélinni, settu stóra kaffikönnu undir kaffistútana og kaffivélin hellir upp á allt að átta bolla af kaffi í röð einn á eftir öðrum. Vélin getur einnig hellt upp á nægt heitt vatn til þess að fylla teketil. Mögulegt er að kaupa praktíska, einangrandi kaffikönnu frá Miele aukalega sem heldur teinu eða kaffinu þínu heitu í langan tíma.
-9c4ad275-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Tímastillir
Alltaf á réttum tíma
Hvenær sem þér hentar: mögulegt er að stilla kaffivélina þannig að hún kveiki og slökkvi á sér á ákveðnum tíma dags, þegar þér hentar. Til dæmis er hægt að láta kaffivélina kveikja á sér þannig að hún sé tilbúin fyrir morgunmat og slökkva á sér á kvöldin. Sjálfvirka hreinsun og afkölkun er líka hægt að tímastilla eftir þínum þörfum – fyrir meiri sveigjanleika. Auk þessa getur kaffivélin slökkt á sér ef hún er ekki í notkun í lengri tíma til þess að spara orku.

AromaticSystemFresh
Alltaf nýmalað
Finndu muninn: kaffivélin hellir upp á einstaklega arómatískt kaffi þökk sé bragðverndandi mölun. Baunirnar eru malaðar ferskar í keilulaga kvörninni fyrir hvern og einn drykk og hellt upp á kaffidrykkinn strax að mölun lokinni. Ný staðsetning kvarnar gerir þetta mögulegt, en hún er staðsett beint fyrir ofan uppáhellarann. Engar leifar af kaffi verða eftir í kvörninni frá fyrri drykk sem tryggir hreint bragð. Auk þessa er keilulaga kvörnin mjög hljóðlát þannig að þú getur notið kaffidrykksins þíns í friði og ró.

Sérsniðnar notendavalmyndir
Vistaðu stillingar fyrir persónulega upplifun
Fyrir persónulega upplifun: þú getur vistað uppáhalds drykkinn þinn í sérsniðinni notandavalmynd, þannig að þú þurfir ekki að stilla hann inn í hvert skipti. Mögulegt er að stilla allt að tíu notendavalmyndir. Sérhver einstaklingur á heimilinu getur því búið til sína eigin notandavalmynd þar sem allir kaffidrykkir eru stilltir eins og hann vill hafa þá. Sérsniðnu notendavalmyndirnar innihalda allar stillingar sem eru mögulegar fyrir uppáhalds drykkina þína: kaffimagn, vatnsmagn, hitastig vatns og magn mjólkur eða mjólkurfroðu ef það á við.
