Fara í meginmál

Vörunúmer: SMF03PKEU

Smeg

Hrærivél heillituð - 50's Retro Style

Einstaklega falleg hrærivél úr 50's línu SMEG. Mjúk ræsing, 10 hraðastillingar og stór 4,8 L skál úr ryðfríu stáli.

109.990 kr.

Hrærivél heillituð - 50's Retro Style

Leyfðu sköpunargáfunni að njóta sín í eldhúsinu

Hvort sem þú er upprennandi kokkur, elskar að baka heima eða einfaldlega kannt að meta fallega hönnun, þá er sterkbyggða Smeg hrærivélin eitthvað fyrr þig. Vélin er heillituð með skínandi enameli, hönnun hennar tók þónokkur ár og eru öll smáatriði þar af leiðandi vandlega úthugsuð. Hrærivélin er áreiðanleg, virkar mjög vel og lítur auk þess frábærlega út. Ergónómísk hönnun og einföld vogarstöng úr stáli gera alla notkun auðvelda og ánægjulega.

Hrærivél heillituð - 50's Retro Style

Öflug og áhrifarík 

Smeg hrærivélin er fullkomin alhliða hrærivél. Hún er með öflugum 800W beindrifnum mótor, 10 hraðastillingum sem gera þér kleift að aðlaga snúningshraðann nákvæmlega að þínum þörfum og mjúkri ræsingu sem tryggir að matvinnsla byrjar varlega. Plánetu-snúningshreyfingar vélarinnar sjá þar að auki til þess að hrærari, þeytari og hnoðari nái til alls yfirborðs 4,8 lítra skálarinnar og blandi hráefnunum fullkomlega saman.

Hrærivél heillituð - 50's Retro Style

Aðlagaðu hrærivélina að þínum þörfum 

Þú hefur allt sem þú þarft til þess að hefja notkun á hrærivélinni strax og þú færð hana í hendurnar, þökk sé öllum staðalfylgihlutum eins og hnoðara, þeytara, flötum hrærara, uppskriftabók og áveituskildi. Hins vegar er hægt að panta og bæta við nytsamlegum aukahlutum ef þú óskar þess, eins og til dæmis græju til þess að skera grænmeti, hakka kjöt, búa til pasta og gera ís!