Fara í meginmál

Vörunúmer: SAB4104S

Smeg

Hraðkælir - Linea

Hraðkælir úr silfurlituðu gleri úr Linea línu Smeg. Hraðkælir er tæki sem er notað til þess að vernda gæði matvæla. Hann kemur í veg fyrir bakteríumyndun og eykur geymslutíma matvæla um allt að 70%. Mögulegt er að hraðkæla og djúpfrysta matvæli, kæla flöskur hratt og geyma matvæli við kjörhitastig. Einnig er hægt að hefa brauð í hraðkælinum, hægelda matvæli, affrysta og afþýða.

735.990 kr.

Sérpöntun

Hraðkælir - Linea

Endurspeglun glæsileika 

Linea vörulínan fagnar fyrsta undirstöðuatriði hönnunar – "línunni". Helstu einkenni vörulínunnar eru samhverfar línur, jafnvægi og birta. Stopsol® "supersilver" gler, mjög sterkt efni með kristals gagnsæi, gefur tækjunum fallega spegiláferð sem endurkastar ljósi og litum þess umhverfis sem tækin eru staðsett í. Hönnunarsamsetning þessa glæsilega spegilglers við ryðrítt stál með satin áferð myndar fallegt jafnvægi. Áreynslulaus einfaldleiki, jafnvægi og óafsakanlegur minimalismi; Linea tæki eru búin nýjustu tækni og sóma sér vel í nútíma eldhúsum. 

Hraðkælir - Linea

Einstaklega fjölhæft tæki

Hraðkælar frá Smeg eru sérstaklega hannaðir til þess að varðveita gæði matvæla og hafa þeir ýmsa möguleika til kælingar og hitunar. Mögulegt er að undirbúa mikið magn af hráefnum til geymslu í einu, t. d. fyrir alla vikuna, sem getur sparað umtalsverðan tíma við matargerð. Hraðkælir gerir þér einnig kleift að varðveita hráefni betur, sem minnkar matarsóun. Matvæli er hægt að kæla niður í -35°C og hita upp í +75°C  í sama tæki, en þannig má t.d. fara frá frosnum matvælum að morgni en koma að þeim upphituðum og tilbúnum við heimkomu. Margir möguleikar eru til staðar þegar kemur að meðhöndlun og eldun hágæða hráefna, allt frá djúpfrystingu til hægeldunar. 

Hraðkælir -  Dolce Stil Novo

Gæði matvæla varðveitt

Hraðkæling lækkar hitastig eldaðra matvæla niður í +3°C á skömmum tíma. Almennt á gufumyndun sér stað þegar heit matvæli eru kæld og þau missa vítamín, prótein, steinefni og bragð. Hraðkæling kemur hins vegar í veg fyrir að matvælin missi næringarefnin, viðheldur gæðum þeirra og lengir líftíma. Þetta tryggir að hráefnin bragðist jafn fersk og þau væru nýelduð, þegar þau eru borin fram síðar. Mögulegt er að djúpfrysta matvæli í hraðkælinum. Í þessu hraðvirka frystikerfi myndast míkrókristallar í matvælunum og kjarnhiti þeirra lækkar hratt og á skömmum tíma niður í -18°C. Míkrókristallarnir eyðileggja ekki líffræðilega byggingu matvælanna, heldur tryggja þeir að matvælin viðhaldi næringarfræðilegum eiginleikum sínum, útliti, lykt- og bragðgæðum. Kæling drykkja er þægilegt kerfi sem er til staðar. Kerfið gerir þér kleift að kæla flöskur hratt eða um 1°C á mínútu, en þannig er auðvelt að njóta léttvíns og annarra drykkja við kjörhitastig. Við lok hvers kælikerfis fer hraðkælirinn síðan sjálfkrafa í að viðhalda ákveðnu hitastigi og getur þannig geymt matvæli við réttan hita og tryggt að þau séu borin fram með besta móti.

Hraðkælir -  Dolce Stil Novo

Ýmsir möguleikar til hitunar

Mögulegt er að afþýða matvæli varlega við kjöraðstæður í hraðkælinum. Gæði matvælanna viðhaldast við afþýðinguna, þau afþýðast á jafnan hátt og án þess að eldast að hluta. Afþýðingin viðheldur raka í matvælunum, kemur í veg fyrir oxun og breytingar á lit eða þéttleika matvælanna. Tilbúið til neyslu er þægilegt kerfi sem er til staðar. Forelduð matvæli eru geymd við hitastig kæliskáps yfir daginn og hituð upp á stilltum tíma þannig að maturinn sé tilbúinn við heimkomu. Einnig er mögulegt að hægelda í hraðkælinum á lágu hitastigi, eða 75°C. Mjúkt og safaríkt kjöt fæst með hægeldun, bragðgæði aukast, auk þess að ilmur og þéttleiki hráefnisins varðveitist. Fullkomnar aðstæður eru til hefunar í hraðkælinum, en hægt er að geyma deig við rétt hitastig, í réttan tíma, án þess að skyndilegar breytingar á rakastigi eigi sér stað. 

Hraðkælir - Linea

Kjarnhitamælir og elektrónísk hitastýring

Hraðkælirinn er með elektrónískri hitastýringu sem heldur jöfnu og nákvæmu hitastigi í innanrýminu. Auk þess er innbyggður kjarnhitamælir til staðar sem gerir þér kleift að stjórna hitastigi við kælingu eða hitun á nákvæman hátt.