-83f02758-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Hagnýtni rennur saman við fagurfræði, þar sem myrkur verður að ljósi
Minimalískur stíll einkennir Dolce Stil Novo línuna en innblástur hennar kemur frá mikilvægri bókmenntahreyfingu, tileinkaðri ástarljóðum, sem átti sér stað á Ítalíu á 13. öld. Hágæða efnisval, einlitt yfirborð og fallegir skrautlistar úr ryðfríu stáli eða kopar, skapa bæði tímalaust og fágað útlit. Tæki með afgerandi stíl og búin nýjustu tækni sem eru auðveldlega í brennidepli í því rými sem þau standa.

Einstaklega fjölhæft tæki
Hraðkælar frá Smeg eru sérstaklega hannaðir til þess að varðveita gæði matvæla og hafa þeir ýmsa möguleika til kælingar og hitunar. Mögulegt er að undirbúa mikið magn af hráefnum til geymslu í einu, t. d. fyrir alla vikuna, sem getur sparað umtalsverðan tíma við matargerð. Hraðkælir gerir þér einnig kleift að varðveita hráefni betur, sem minnkar matarsóun. Matvæli er hægt að kæla niður í -35°C og hita upp í +75°C í sama tæki, en þannig má t.d. fara frá frosnum matvælum að morgni en koma að þeim upphituðum og tilbúnum við heimkomu. Margir möguleikar eru til staðar þegar kemur að meðhöndlun og eldun hágæða hráefna, allt frá djúpfrystingu til hægeldunar.

Gæði matvæla varðveitt
Hraðkæling lækkar hitastig eldaðra matvæla niður í +3°C á skömmum tíma. Almennt á gufumyndun sér stað þegar heit matvæli eru kæld og þau missa vítamín, prótein, steinefni og bragð. Hraðkæling kemur hins vegar í veg fyrir að matvælin missi næringarefnin, viðheldur gæðum þeirra og lengir líftíma. Þetta tryggir að hráefnin bragðist jafn fersk og þau væru nýelduð, þegar þau eru borin fram síðar. Mögulegt er að djúpfrysta matvæli í hraðkælinum. Í þessu hraðvirka frystikerfi myndast míkrókristallar í matvælunum og kjarnhiti þeirra lækkar hratt og á skömmum tíma niður í -18°C. Míkrókristallarnir eyðileggja ekki líffræðilega byggingu matvælanna, heldur tryggja þeir að matvælin viðhaldi næringarfræðilegum eiginleikum sínum, útliti, lykt- og bragðgæðum. Kæling drykkja er þægilegt kerfi sem er til staðar. Kerfið gerir þér kleift að kæla flöskur hratt eða um 1°C á mínútu, en þannig er auðvelt að njóta léttvíns og annarra drykkja við kjörhitastig. Við lok hvers kælikerfis fer hraðkælirinn síðan sjálfkrafa í að viðhalda ákveðnu hitastigi og getur þannig geymt matvæli við réttan hita og tryggt að þau séu borin fram með besta móti.

Ýmsir möguleikar til hitunar
Mögulegt er að afþýða matvæli varlega við kjöraðstæður í hraðkælinum. Gæði matvælanna viðhaldast við afþýðinguna, þau afþýðast á jafnan hátt og án þess að eldast að hluta. Afþýðingin viðheldur raka í matvælunum, kemur í veg fyrir oxun og breytingar á lit eða þéttleika matvælanna. Tilbúið til neyslu er þægilegt kerfi sem er til staðar. Forelduð matvæli eru geymd við hitastig kæliskáps yfir daginn og hituð upp á stilltum tíma þannig að maturinn sé tilbúinn við heimkomu. Einnig er mögulegt að hægelda í hraðkælinum á lágu hitastigi, eða 75°C. Mjúkt og safaríkt kjöt fæst með hægeldun, bragðgæði aukast, auk þess að ilmur og þéttleiki hráefnisins varðveitist. Fullkomnar aðstæður eru til hefunar í hraðkælinum, en hægt er að geyma deig við rétt hitastig, í réttan tíma, án þess að skyndilegar breytingar á rakastigi eigi sér stað.

Kjarnhitamælir og elektrónísk hitastýring
Hraðkælirinn er með elektrónískri hitastýringu sem heldur jöfnu og nákvæmu hitastigi í innanrýminu. Auk þess er innbyggður kjarnhitamælir til staðar sem gerir þér kleift að stjórna hitastigi við kælingu eða hitun á nákvæman hátt.

Alþjóðleg verðlaun
Hraðkælirinn hefur fengið góðar viðtökur og hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna, Good Design Awards og Red Dot Design Awards.
