Fara í meginmál

Vörunúmer: EVS7010G

Miele

Höldulaus vacuum-skúffa

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Höldulaus vacuum skúffa frá Miele sem er 14 cm á hæð. Vacuum skúffan er með þægilegri Push2Open hurðaropnun og stjórnborði með snertitökkum í falsi. Skúffan vacuum pakkar matvælum, en þannig endast matvælin lengur við geymslu og henta fullkomlega fyrir Sous-vide eldun. Mögulegt er að marinera matvæli í vacuum pakkningum og skipta þeim niður í hentugar skammtastærðir.  Skúffan er fullútdraganleg á brautum þannig að auðvelt er að setja matvæli í skúffuna og taka þau úr henni.

699.990 kr.

Ekki til á lager

Höldulaus vacuum-skúffa

Vacuum pökkun

Fullkominn undirbúningur og lengri geymslutími

Einfalt grundvallaratriði sem fylgja margir kostir: praktíska vacuum skúffan frá Miele fjarlægir súrefni og loft úr ílátum, boxum og lofttæmingarpokum. Þessi aðferð skapar frábærar aðstæður fyrir matvælin þín og lengir geymsluþol þeirra. Vacuum pökkun matvæla er einnig fullkominn undirbúningur fyrir sous-vide eldun í gufuofni og fyrir skömmtun og geymslu matvæla.

Höldulaus vacuum-skúffa

Undirbúningur fyrir sous-vide eldun

Fullkominn undirbúningur

Miele vacuum skúffa er fullkomin leið til þess að undirbúa matinn þinn fyrir varlega sous-vide eldun í Miele gufuofni. Skúffan fjarlægir súrefni og loft úr lofttæmingarpokunum sem innihalda matvælin þín. Eftir þetta er mögulegt að elda matinn varlega með sous-vide aðferð. Við sous vide eldun varðveitist stór hluti af vítamínum og næringarefnum matvælanna, enn fremur verður kjöt sem er eldað með þessari aðferð sérstaklega safaríkt og bragðgott.

Höldulaus vacuum-skúffa

Stjórnborð með snertitökkum

Snjallt og auðskiljanlegt

Einfalt stjórnborð: Miele vacuum skúffunni er stjórnað með auðveldum og snjöllum hætti með SensorTouch stjórnborði, sem er undir glerpanel í falsi skúffunnar. Stjórnborðið veitir beinan aðgang að allri virkni skúffunnar – fyrir hámarksþægindi notanda. Auk þess er stjórnborðið auðvelt í þrifum og þar af leiðandi viðhaldslítið.

Höldulaus vacuum-skúffa

Þrjú stig lofttæmingar 

Fullkomið fyrir hvaða matvæli sem er

Þú getur valið á milli þriggja mismunandi stiga lofttæmingar: viltu vacuum pakka matvælum eins og ávöxtum sem eru viðkvæm fyrir þrýstingi? Veldu þá stig 1. Við mælum með stigi 3 – hæstu stillingu – fyrir kjöt og stigi 2 fyrir matvæli sem innihalda mikið magn af vökva. Mismunandi stig lofttæmingar veita fullkomna vernd fyrir matinn þinn og tryggja besta mögulega árangur.

Höldulaus vacuum-skúffa

Push2open

Ein snerting er nóg

Fullar hendur? Ekkert mál – ýttu varlega á skúffuna og hún opnast strax þökk sé praktísku Push2open tækninni. Tæknibúnaður með gormum sér til þess að skúffan opnist alveg út, sem auðveldar bæði hleðslu og alla notkun. Úthugsað hölduleysið tryggir að skúffan passi fullkomlega við öll innbyggðu Miele tækin.

Höldulaus vacuum-skúffa

Stórt nothæft rými 

Nægt rými fyrir hvaða stærð sem er 

Frábær sveigjanleiki: þú getur notað Miele vacuum skúffuna fyrir fjölbreytt ílát og lofttæmingarpoka í mismunandi stærðum. Innvols skúffunnar er stórt og veitir nægt rými fyrir alls konar matvæli í mismunandi magni. Hámarksstærð matvæla er 250 x 350 mm og hámarkshæð 80 mm.

Höldulaus vacuum-skúffa

Lofttæmingarpokar sem eru öruggir fyrir matvæli

Sérhannaðir fyrir matvæli 

Miele lofttæmingarpokarnir eru hannaðir með sérstakar kröfur í huga: fyrir örugga geymslu alls kyns matvæla. Þeir eru hitaþolnir, suðuþolnir, rifna ekki auðveldlega, lausir við mýki og öruggir fyrir matvæli. Auk þess eru lofttæmingarpokarnir með hlutlausu bragði, þannig að engin hætta er á því að bragð smitist í matvælin.

Höldulaus vacuum-skúffa

Fjölbreytt notkun

Fjölmargir valkostir 

Hvort sem þú vilt auka geymsluþol matvælanna þinna eða skipta þeim upp í smærri skammta, er vacuum skúffan frá Miele fullkominn kostur. Vacuum pakkaður matur helst ferskur lengur og er fullkomlega undirbúinn fyrir sous-vide eldun. Njóttu frábærlega bragðmikils kjöts með því að vacuum pakka því marineruðu. Hentugt ráð: vacuum skúffuna má einnig nota til þess að endurinnsigla pakkningum eða krukkum eftir að þær hafa verið opnaðar.

Höldulaus vacuum-skúffa

Útdraganlegar brautir að fullu 

Hentugt og gott aðgengi

Mögulegt er að draga Miele skúffuna alla leið út, þökk sé fullútdraganlegum brautum. Þetta gerir þér mun auðveldara að hlaða skúffuna og taka hluti úr henni og tryggir þægindi við notkun. Útdaganlegu brautirnar eru stöðugar og traustar þannig að auðvelt er að opna og loka skúffunni.