Fara í meginmál

Vörunúmer: ESW7010G

Miele

Höldulaus hitaskúffa

Sýningareintak í verslun.

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Hitaskúffa frá Miele sem er 14 cm á hæð. Hitaskúffan er með þægilegri Push2Open hurðaropnun og stjórnborð með snertitökkum í falsi. Mögulegt að hægelda matvæli á lágu hitastigi, halda matvælum heitum, hita upp bolla og hita upp leirtau. Hitaskúffan slekkur sjálfkrafa á sér eftir 4 klukkutíma í notkun.

299.990 kr.

Sérpöntun

Höldulaus hitaskúffa

Hægeldun 

Hitaminnkun fyrir bragðgóðan árangur 

Hægeldun er fullkomin leið til þess að elda hágæða kjöt: þessi aðferð er mikið notuð af atvinnukokkum, en með henni er kjötið eldað varlega við lágt hitastig til þess að tryggja varðveislu bragðs og næringarefna. Kjötið verður mjúkt, safaríkt og bragðgott en mögulegt er að skera það strax að eldunarferli loknu. Óþarfi er að láta kjötið standa fyrst vegna þess að dreifing safans í kjötinu er jöfn.

Höldulaus hitaskúffa

Fjögur kerfi 

Fjöltæk notkun

Margir möguleikar: þú getur valið á milli fjögurra mismunandi kerfa í Gourmet hitaskúffunni. Forhitaðu kaffibollana fyrir hreina ánægju. Á kvöldin getur þú notið þess munaðar að forhita diskana þína. Ef maturinn er ekki alveg tilbúinn til framreiðslu að eldun liðinni, heldur hitaskúffan matnum heitum fyrir þig. Að lokum er hægeldun fullkomin leið til þess að elda mjúkt og safaríkt kjöt.

Höldulaus hitaskúffa

Stjórnborð með snertitökkum

Snjallt og auðskiljanlegt

Einfalt stjórnborð: Miele vacuum skúffunni er stjórnað með auðveldum og snjöllum hætti með SensorTouch stjórnborði, sem er undir glerpanel í falsi skúffunnar. Stjórnborðið veitir beinan aðgang að allri virkni skúffunnar – fyrir hámarksþægindi notanda. Auk þess er stjórnborðið auðvelt í þrifum og þar af leiðandi viðhaldslítið.

Höldulaus hitaskúffa

Push2open

Ein snerting er nóg

Fullar hendur? Ekkert mál – ýttu varlega á skúffuna og hún opnast strax þökk sé praktísku Push2open tækninni. Tæknibúnaður með gormum sér til þess að skúffan opnist alveg út, sem auðveldar bæði hleðslu og alla notkun. Úthugsað hölduleysið tryggir að skúffan passi fullkomlega við öll innbyggðu Miele tækin.

Höldulaus hitaskúffa

Tímastillir

Hrein og bein þægindi

Áhyggjulaus eldamennska: tímastillirinn, sem hægt er að stilla upp að 4 tímum, gerir þér kleift að gera aðra hluti á meðan á eldun stendur. Miele Gourmet hitaskúffan slekkur sjálfkrafa á sér eftir að valin tímalengd er liðin. Þetta gefur þér aukið frelsi og möguleika á því að einbeita þér að öðrum hlutum á meðan eldun fer fram.

Höldulaus hitaskúffa

Útdraganlegar brautir að fullu 

Hentugt og gott aðgengi

Mögulegt er að draga Miele skúffuna alla leið út, þökk sé fullútdraganlegum brautum. Þetta gerir þér mun auðveldara að hlaða skúffuna og taka hluti úr henni og tryggir þægindi við notkun. Útdaganlegu brautirnar eru stöðugar og traustar þannig að auðvelt er að opna og loka skúffunni.

Höldulaus hitaskúffa

Fjölbreytt notkun

Fjölmargir valkostir 

Allt frá því að bræða súkkulaði til varlegrar afþýðingar matvæla: með Miele Gourmet skúffunni getur þú undirbúið alls konar matvæli alveg eins og þú vilt hafa þau, með hágæða árangri í hvert skipti. Hægeldun er sérstakur hápunktur, en með henni verður hvers kyns kjöt frábærlega safaríkt og mjúkt.