
DualSteam
Jafn árangur gufudreifingar tryggður
Fullkomnun sem hentar þínum persónulegu þörfum: Miele gufuofnar tryggja fullkomna eldun og eru frábær viðbót við blástursofn og helluborð. Þú getur eldað heilar máltíðir samsettar af mörgum réttum á sama tíma í ofninum. DualSteam tryggir hraða og jafna dreifingu gufu í ofnrými og kringum bakkana. Upphitun er hröð og eldunartími stuttur. Matseldin verður leikur einn þökk sé DualSteam og gufumyndun sem á sér stað fyrir utan ofnrýmið.

Combi gufu-ofnkerfi
Raki og þurr hiti: fullkomin samsetning
Sveigjanleiki fyrir fullkominn bakstur og steikingu: þú getur sameinað gufusuðu með öðrum eldunarkerfum allt eftir þínum þörfum. Til þess að tryggja besta árangurinn, getur þú aðlagað bæði hitastig (40°C til 225°C) og rakastig (0% til 100%) í blönduðu eldunarkerfunum. Þessum stillingum er mögulegt að breyta allt að 6 sinnum í röð. Árangurinn er matur sem er eldaður alveg eins og þú vilt hafa hann.

3-in-1
Allt í einu tæki
3 in 1 reglan gefur þér eitt tæki með þrjú hlutverk. Þetta þýðir að þú getur töfrað fram dásamlega rétti jafnvel þótt eldhúsrýmið sé takmarkað – notaðu ofnkerfi fyrir stökka skorpu eða gufusuðu til að elda matvæli varlega. Blönduð eldunarkerfi eru besti kosturinn fyrir fullkomna eldun. Fjöldi annarra eldunarkerfa eins og upphitun og afþýðing gera þér kleift að sérstilla eldunarferlið nákvæmlega að þínum þörfum.

Þráðlaus kjarnhitamælir
Fiskur og kjöt eldað með nákvæmum hætti
Ennþá hrátt eða of þurrt? Með innbyggða kjarnhitamælinum, getur þú mælt kjarnhitastig fisks eða kjöts til þess að tryggja að maturinn sé eldaður nákvæmlega eins og þú vilt. Eftirstöðvar eldunartíma á skjánum segir til um hvenær steikin þín verður tilbúin – þannig að þú getur farið út úr eldhúsinu þegar þér hentar. Kjarnhitamælirinn er ótrúlega einfaldur í notkun og er útkoman safarík og bragðmikil.

Ofnrými úr ryðfríu stáli með lérefts mynstri
Eiginleikar sem fagmenn þekkja
Meira en nægt rými og hröð þrif: ofnrýmið er úr ryðfríu stáli og er nýtanlegt rými allt að 48 lítrar. Þar af leiðandi er mögulegt að setja til dæmis heila kjúklinga á stóran eldunarbakka og koma fyrir í ofninum. Þetta þýðir að þú getur eldað heilar máltíðir fyrir 8 til 10 manns í einu – til þægindaauka. Auk þess að vera rúmgott, er ofnrýmið algerlega ryðvarið og mjög auðvelt í þrifum. Bökunarplötur úr blástursofnum Miele má einnig nota í Miele gufuofna með blæstri sem er praktískur kostur.

Menu Cooking - Auto
Fyrir heilar máltíðir
Fiskur eða kjöt, kartöflur eða grænmeti: þú getur sameinað allt að þrjú Auto kerfi fyrir þrjár mismunandi fæðutegundir. Tækið stillir rétt hitastig, eldunartíma og röð. Allt sem þú þarft að gera fyrir fullkominn árangur, er að setja matinn inn í gufuofninn á réttum tíma og í þeirri röð sem ofninn gefur upp. Þetta gefur þér möguleika á því að elda heilar máltíðir, þar sem allt verður tilbúið samtímis, í aðeins einu eldunarferli.

Mótordrifin opnun og lokun á stjórnborði - SoftClose
Meira en bara stjórnborð
Hönnun og þægindi notanda sameinuð: stjórnborðið opnast og lokast hljóðlega með því að ýta á einn snertitakka – án þess að þörf sé á að opna hurðina á tækinu sjálfu. Þegar stjórnborðið lyftist upp, færast vatnstankur og tankur fyrir affallsvatn fram þannig að auðvelt sé að fjarlægja þá til áfyllingar eða tæmingar. Þráðlausi kjarnhitamælirinn er einnig geymdur á bak við stjórnborðið. Panellinn hallast upp til þín þegar þú ýtir á snertitakkann og gefur þér þar með bestu mögulegu sýn á stjórnborðið.

Auto kerfi
Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður
Hversu lengi þarf að baka brauðið? Hversu lengi þarf að elda grænmetið? Þú þarft hvorki að velja hitastig né tímalengd í allt að 265 mismunandi sjálfvirkum kerfum gufuofnsins - tækið þitt mun sjá um allt og þar með gera þitt líf auðveldara. Viltu að skorpan á kjúklinginum sé aðeins stökkari? Þú getur valið stig eldunar á stuðlariti fyrir margar fæðutegundir.

Sous-vide eldun
Eldað í lofttæmi
Jafnt og varlega: þú getur eldað mat í gufuofninum með sous-vide aðferð. Þetta felur í sér að elda fisk, kjöt, ávexti og grænmeti varlega á lágu hitastigi í langan tíma, sem leiðir af sér frábærlega ilmandi og dásamlega bragðgóðan mat. Matvælin viðhalda útliti sínu og lögun, auk allra vítamína og steinefna.

BrilliantLight
Fullkomin yfirsýn á öllum hæðum
Hágæða LED lýsing tryggir að allar hæðir í ofnrýminu eru fullkomlega upplýstar, sem gefur þér bestu yfirsýn á matinn þinn frá öllum hliðum.

Gufa framleidd fyrir utan ofnrýmið
Kostir ytri gufumyndunar
Nýstárlegt gufukerfi: Ólíkt öðrum gufuofnum þá er gufan í Miele gufuofnum framleidd fyrir utan ofnrýmið. Á meðan eldun fer fram streymir gufan inn í ofnrýmið, fyllir það algjörlega og leysir súrefnið af hólmi. Árangurinn er stuttur eldunartími og nákvæm hitastýring auk þess að náttúruleg litarefni matvælanna varðveitast. Þrif eru einnig einstaklega auðveld vegna þess að útfellingar geta ekki safnast upp í ofnrýminu sjálfu.
