Fara í meginmál

Vörunúmer: DGC7440HCG

Miele

Gufuofn með blæstri - DirectSensor

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Gufuofn með blæstri fyrir gufusuðu, bakstur, steikingu með miele@home + HydroClean.

  • Stórt og skírt stjórnborð með snertitökkum – DirectSensor
  • Fullkominn árangur - DualSteam gufutækni
  • Stökkt að utan, safaríkt að innan – combi gufu-ofnkerfi
  • Þægindi við notkun – vatnstankur staðsettur á bak við sjálfvirkan panel
  • Auðveld þrif – HydroClean og innanrými úr ryðfríu stáli

759.990 kr.

Sérpöntun

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

DualSteam

Jafn árangur gufudreifingar tryggður

Fullkomnun sem hentar þínum persónulegu þörfum: Miele gufuofnar tryggja fullkomna eldun og eru frábær viðbót við blástursofn og helluborð. Hröð upphitun og stuttur eldunartími auk jafnrar gufudreifingar, gera eldamennskuna auðveldari – þetta er mögulegt þökk sé öflugri gufumyndun (3,3 kW) sem á sér stað fyrir utan ofnrýmið og sérstakri staðsetningu tveggja DualSteam gufustúta.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Combi gufu-ofnkerfi

Raki og þurr hiti: fullkomin samsetning

Sveigjanleiki fyrir fullkominn bakstur og steikingu: þú getur sameinað gufusuðu með öðrum eldunarkerfum allt eftir þínum þörfum. Til þess að tryggja besta árangurinn, getur þú aðlagað bæði hitastig (40°C til 225°C) og rakastig (0% til 100%) í blönduðu eldunarkerfunum. Þessum stillingum er mögulegt að breyta allt að 10 sinnum í röð. Árangurinn er matur sem er eldaður alveg eins og þú vilt hafa hann.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

3-in-1 

Allt í einu tæki

3 in 1 reglan gefur þér eitt tæki með þrjú hlutverk. Þetta þýðir að þú getur töfrað fram dásamlega rétti jafnvel þótt eldhúsrýmið sé takmarkað – notaðu ofnkerfi fyrir stökka skorpu eða gufusuðu til að elda matvæli varlega. Blönduð eldunarkerfi eru besti kosturinn fyrir fullkomna eldun. 

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Miele@home

Snjöll stjórnun gegnum netið

Með nýjunginni Miele@home, getur þú fullnýtt þér alla möguleika Miele tækisins þíns og snjallvætt hversdagslífið enn frekar. Öllum Miele snjalltækjum er hægt að stjórna á þægilegan og öruggan hátt í gegnum netið. Notkun fer fram í gegnum WiFi router og Miele skýið.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

HydroClean

Gagnger, sjálfvirk hreinsun

Aukin þægindi fyrir þig: HydroClean er einföld leið til að hreinsa ofnrými Miele gufuofna með innanrými úr ryðfríu stáli. Ferlið er sjálfvirkt og hreinsar yfirborðið ítarlega. Froðan sem myndast þegar vatn blandast við Miele HydroCleaner hreinsiefnið, bleytir upp matarleifarnar í ofnrýminu og fjarlægir þær af yfirborðinu. Jafnvel þrálát óhreinindi eru fjarlægð á þægilegan hátt, sem sparar þér fyrirhöfn við að skrúbba þau burt og skilar ofnrýminu þínu algerlega hreinu.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

BrilliantLight

Fullkomin yfirsýn á öllum hæðum

Hágæða LED lýsing tryggir að allar hæðir í ofnrýminu eru fullkomlega upplýstar, sem gefur þér bestu yfirsýn á matinn þinn frá öllum hliðum.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Ofnrými úr ryðfríu stáli með lérefts mynstri

Eiginleiki sem fagmenn þekkja

Ofnrýmið er úr ryðfríu stáli, það er sérstaklega slitsterkt og einnig ryðvarið, sem þýðir að þú nýtur góðs af framúrskarandi endingu og hámarks gæðum. Sérstakt lérefts mynstur gefur innvolsinu einstakt yfirbragð sem sómir hágæða hönnun.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

Crisp function 

Gerir mat stökkan 

Sum matvæli þurfa fallegt stökkt yfirborð fyrir þessa fullkomnu lokaáferð: best er til dæmis að elda kartöfluflögur, pizzu og franskar kartöflur í ofnrými með þurrum hita. Þessu er stjórnað með því að minnka rakann í ofninum. Þú getur valið stillinguna Crisp function eina og sér.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Auto kerfi 

Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður  

Hversu lengi þarf að baka brauðið? Hversu lengi þarf að elda grænmetið? Þú þarft hvorki að velja hitastig né tímalengd - tækið þitt mun sjá um allt og þar með gera þitt líf auðveldara. Viltu að skorpan á kjúklinginum sé aðeins stökkari? Þú getur valið stig eldunar á stuðlariti fyrir margar fæðutegundir.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Ofn heldur heitu eftir að kerfi er lokið

Varðveitir næringarefni og verndar tækið

Í lok eldunarferlis er matnum sjálfkrafa haldið heitum í allt að 15 mínútur án þess að gæðin tapist. Þar af leiðandi skiptir ekki máli þótt þér seinki aðeins.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Menu Cooking – Auto

Fyrir heilar máltíðir

Fiskur eða kjöt, kartöflur eða grænmeti: Þú getur eldað allt að þrjár mismunandi fæðutegundir á sama tíma með Auto menu cooking. Tækið stillir rétt hitastig, eldunartíma og röð. Allt sem þú þarft að gera fyrir fullkominn árangur, er að setja matinn inn í gufuofninn á réttum tíma og í þeirri röð sem ofninn gefur upp. Þetta gefur þér möguleika á því að elda heilar máltíðir, þar sem allt verður tilbúið samtímis, í aðeins einu eldunarferli.

Höldulaus blástursofn með FoodView, pyro & kjarnhitamæli - M-Touch

SoftOpen & SoftClose 

Mjúkar hurðarhreyfingar

Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Mótordrifin opnun og lokun á stjórnborði – SoftClose

Meira en bara stjórnborð

Hönnun og þægindi notanda sameinuð: stjórnborðið opnast og lokast hljóðlega með því að ýta á einn snertitakka – án þess að þörf sé á að opna hurðina á tækinu sjálfu. Vatnstankur, tankur fyrir affallsvatn og þráðlaus kjöthitamælir eru geymdir bak við stjórnborðið og koma í ljós þegar stjórnborðið lyftist upp. Panellinn hallast upp til þín þegar þú ýtir á snertitakkann og gefur þér þar með bestu mögulegu sýn á stjórnborðið.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Mikið úrval af sérhæfðum kerfum

Fjölbreyttir möguleikar

Frá affrystingu til blanching og þurrkunar: Með samsetta gufuofninum frá Miele getur þú útbúið alls kyns mat alveg eins og þú vilt, með topp árangri í hvert skipti. Meðal annars er hægt að hefa deig í ofnrýminu fyrir hina fullkomnu pizzu eða brauðhleif.

Höldulaus gufuofn með blæstri & kjarnhitamæli - M-Touch

Tímastjórnun

Láttu ofninum eftir tímastjórnunina

Stilltu einfaldlega hvenær eldun á að hefjast, hvenær henni á að ljúka eða hversu lengi eldunarferlið á að standa og allt verður tilbúið þegar þú vilt. Eldunarferlinu lýkur sjálfkrafa þegar innstilltum eldunartíma í tímasettum ofnkerfum lýkur. Innbyggður tímastillir (Minute minder) er einnig þægilegur valkostur í mörgum tilfellum. Ennfremur, ef rafmagni slær út, er rauntími sem ofninn er stilltur á vistaður í allt að 150 klst.