Fara í meginmál

Vörunúmer: DG7240R

Miele

Gufuofn - DirectSensor S

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Innbyggður gufuofn frá Miele með DirectSensor S snertitökkum og TFT skjá. Ofnin er með stóru 40 lítra innanrými, einföldum og þægilegum sjálfvirkum eldunarkerfum og fullkominni DualSteam gufutækni sem tryggir hraða og jafna dreifingu gufu sem skilar sér í fullkomnum árangri við eldun.

399.990 kr.

Sérpöntun

Gufuofn - DirectSensor

DualSteam 

Jafn árangur gufudreifingar tryggður

Fullkomnun sem hentar þínum persónulegu þörfum: Miele gufuofnar tryggja fullkomna eldun og eru frábær viðbót við blástursofn og helluborð. Þú getur eldað heilar máltíðir samsettar af mörgum réttum á sama tíma í ofninum. DualSteam tryggir hraða og jafna dreifingu gufu í ofnrými og kringum bakkana. Upphitun er hröð og eldunartími stuttur. Matseldin verður leikur einn þökk sé DualSteam og gufumyndun sem á sér stað fyrir utan ofnrýmið.

Gufuofn - DirectSensor

Ofnrými úr ryðfríu stáli með lérefts mynstri 

Eiginleikar sem fagmenn þekkja

Meira en nægt rými og hröð þrif: ofnrýmið er úr ryðfríu stáli og er nýtanlegt rými allt að 40 lítrar. Þar af leiðandi er mögulegt að setja til dæmis heilan kjúkling eða fisk á stóran bakka og koma fyrir í ofninum. Þetta þýðir að þú getur eldað heilar máltíðir fyrir 8 til 10 manns í einu – til þægindaauka. Auk þess að vera rúmgott, er ofnrýmið algerlega ryðvarið og mjög auðvelt í þrifum.

Gufuofn - DirectSensor

Stórt ofnrými og stórir bakkar 

Nægt rými fyrir sköpunargleðina 

Eldað fyrir alla fjölskylduna: nýja ofnrými Miele gufuofns með DualSteam gerir þér kleift að elda mikið magn af mat í einu og bera hann fram þegar hann er fullkomlega eldaður. Þökk sé 40 lítra ofnrými, getur þú sett annað hvort einn stóran eða tvo litla bakka á hverja af þremur hæðum ofnrýmisins. Þetta gefur þér nægt rými til að elda fyrir marga í einu, átakalaust. 

Gufuofn - DirectSensor

Auto kerfi 

Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður  

Hversu lengi þarf að elda hrísgrjónin? Hvað með grænmetið? Þú þarft hvorki að velja hitastig né tímalengd í allt að 135 mismunandi sjálfvirkum kerfum gufuofnsins - tækið þitt mun sjá um allt og þar með gera þitt líf auðveldara. Viltu að gulræturnar séu aðeins stökkari? Þú getur valið stig eldunar á stuðlariti fyrir margar fæðutegundir.

Gufuofn - DirectSensor

Gufa framleidd fyrir utan ofnrýmið  

Kostir ytri gufumyndunar 

Nýstárlegt gufukerfi: Ólíkt öðrum gufuofnum þá er gufan í Miele gufuofnum framleidd fyrir utan ofnrýmið. Á meðan eldun fer fram streymir gufan inn í ofnrýmið, fyllir það algjörlega og leysir súrefnið af hólmi. Árangurinn er stuttur eldunartími og nákvæm hitastýring auk þess að náttúruleg litarefni matvælanna varðveitast. Þrif eru einnig einstaklega auðveld vegna þess að útfellingar geta ekki safnast upp í ofnrýminu sjálfu.

Gufuofn - DirectSensor

Gagnsæ hurð

Allt í augnsýn 

Fullkomið útsýni: þú getur fylgst með matnum á meðan eldun fer fram í gegnum gagnsæu hurðina. Fullkomin sýn á matinn í ofninum öllum stundum.