Fara í meginmál

Vörunúmer: SR964XGH

Smeg

Gashelluborð - Victoria

Gashelluborð úr Victoria línu Smeg. Gasbrennarar eru 4 þar af 1 öflugur wok brennari og breiddin um það bil 60 cm. Helluborðið er með pottjárnsgrindum, yfirborði úr ryðfríu stáli og öryggisventli gegn gasleka.

148.990 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð - Victoria

Ástríða fyrir hefðum og smáatriðum

Fagurfræði Victoria línunnar er tileinkuð fólki sem vill hlýlegt eldhúsrými sem tekur vel á móti því. Þeim sem vilja skapa andrúmsloft sem er uppfullt af friðsæld, gleði og hlátri, þar sem tíminn virðist standa í stað. Innblástur línunnar kemur frá "Elisabeth" eldavélinni, þeirri fyrstu sem Smeg framleiddi árið 1948 og töfrar fram nostalgíska sveitarómantík. Línan sameinar tímalausa, klassíska hönnun og einstaka fegurð.

Gashelluborð - Victoria

Hönnun sem grípur augað

Einstök retro hönnun gerir gashelluborðið auðveldlega að brennidepli í eldhúsinu. Hágæða ryðfrítt stál gefur borðinu stílfagurt yfirbragð og sterkbyggðar, hitaþolnar pottjárnsgrindur veita hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Þessi gæði skila sér í góðri endingu helluborðsins og einföldum þrifum.

Gashelluborð - Victoria

Fjölbreyttar stærðir brennara með rafmagnskveikju

Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara. 

Gashelluborð - Victoria

Öryggisventill gegn gasleka 

Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.