
Hagnýtni rennur saman við fagurfræði, þar sem myrkur verður að ljósi
Minimalískur stíll einkennir Dolce Stil Novo línuna en innblástur hennar kemur frá mikilvægri bókmenntahreyfingu, tileinkaðri ástarljóðum, sem átti sér stað á Ítalíu á 13. öld. Hágæða efnisval, einlitt yfirborð og fallegir skrautlistar úr ryðfríu stáli eða kopar, skapa bæði tímalaust og fágað útlit. Tæki með afgerandi stíl og búin nýjustu tækni sem eru auðveldlega í brennidepli í því rými sem þau standa.

Vandað efnisval
Efnisval helluborðsins er vandað og það sómir sér vel í hvaða eldhúsi sem er. Botn helluborðsins er styrktur með stálplötu sem er staðsett beint undir keramikplötunni. Einfalda keramik glerplatan mælist aðeins 4 til 8 mm á þykkt, en er þrátt fyrir það ótrúlega sterkbyggð, þolir hita yfir 800°C, auk þess að vera vatns- og höggþolin. Sterkbyggðar og hitaþolnar pottjárnsgrindur veita síðan hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Þessi gæði skila sér í góðri endingu helluborðsins og einföldum þrifum.

Fjölbreyttar stærðir brennara með rafmagnskveikju
Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Gashelluborðið er einnig með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara.

Öryggisventill gegn gasleka
Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.
