Fara í meginmál

Vörunúmer: PV375N

Smeg

Gashelluborð með keramikplötu - Classic

Gashelluborð úr Classic línu Smeg sem hægt er að fella niður í borðplötu. Gasbrennarar eru 5 þar af af 1 öflugur wok brennari og breiddin um það bil 72 cm. Helluborðið er með keramikplötu, ryðfríum snúningstökkum, pottjárnsgrindum og  öryggisventli gegn gasleka.

206.460 kr.

Sérpöntun

Gashelluborð - Classic

Smekkleg hönnun sem einkennist af ryðfríu stáli og hreinum línum 

Fyrsta vörulínan sem Smeg hannaði í samstarfi við arkítektinn Guido Canali fékk nafnið Classica. Ryðfrítt stál er aðalsmerki línunnar og hvernig það er notað á afskaplega smekklegan og nákvæman hátt. Tækin í Classic línunni eru með einkennandi stjórntökkum og handföngum, sem minna um margt á tæki í atvinnueldhúsum. Þau eru hagnýt og fjölhæf sem endurspeglar, auk glæsilegrar útlitshönnunar, gæði þeirra. Hönnunin einkennist af beinum línum, einföldum formum og er í senn hrein og fáguð. Skemmtilega tímalaus stíll með nútímalegu ívafi sem sómir sér vel í flestum gerðum eldhúsa.

Gashelluborð með keramikplötu - Classic

Vandað efnisval  

Efnisval helluborðsins er vandað og það sómir sér vel í hvaða eldhúsi sem er. Botn helluborðsins er styrktur með stálplötu sem er staðsett beint undir keramikplötunni. Einfalda keramik glerplatan mælist aðeins 4 til 8 mm á þykkt, en er þrátt fyrir það ótrúlega sterkbyggð, þolir hita yfir 800°C, auk þess að vera vatns- og höggþolin. Sterkbyggðar og hitaþolnar pottjárnsgrindur veita síðan hámarks stöðugleika fyrir potta og pönnur. Þessi gæði skila sér í góðri endingu helluborðsins og einföldum þrifum.

Gashelluborð með keramikplötu - Classic

Fjölbreyttar stærðir brennara og öryggisventill gegn gasleka

Fjölbreyttar stærðir brennara gefa möguleika á réttu afli fyrir öll tækifæri. Helluborðið er með allt frá litlum orkusparandi brennara fyrir hæga og viðkvæma eldun að öflugum wok brennara fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Gashelluborðið er með rafmagnskveikju og því engin þörf á eldspítum eða kveikjara. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara. Hámarks öryggi og hugarró fæst með öryggisventli gegn gasleka. Ef gaslogi slokknar tímabundið, t.d. vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks, þá lokar helluborðið á gasflæði til brennara eftir örskamma stund.