
Fjölbreytt úrval mjólkurdrykkja
Loft- og kremkennd mjólkurfroða gefur vinsælum drykkjum þann frísk- og léttleika sem þeir þurfa, hvort heldur sem lokaskreyting eða sem lykil innihaldsefni. Sjálfvirka flóunarkannan töfrar fram drykki sem eru algert lostæti úr kaldri, hitaðri eða heitri mjólk. Drykki fyrir allar árstíðir, hvort sem um ræðir heitt súkkulaði á vetrarkvöldum, kaldan ávaxta Romanoff á vorin, frískandi kaldan flat white á heitum sumardögum eða kalt chai latte að hausti til. Lítill uppskriftabæklingur fylgir með flóunarkönnunni sem veitir innblástur fyrir alls konar drykki og eru ímyndunaraflinu engin takmörk sett.

Köld mjólkurfroða með einni snertingu
Einfaldlega ýttu á hnappinn einu sinni, tvisvar eða þrisvar og köld, hituð eða heit mjólk er freydd í mjólkurtankinum. Sjálfskýrandi tákn lýsast upp og sýna hvað hefur verið valið.

Falleg hönnun
Útlit og áferð sjálfvirku flóunarkönnunar endurspeglar klassíska JURA hönnun. Hönnunin tryggir hámarks hreinlæti og flóunarkönnuna er auk þess einfalt að handleika. Auðvelt er að grípa um könnuna á mjúku og hitaþolnu gúmmí og fáguð króm smáatriði heilla notandann. Viðhaldslítill efniviður eins og ryðfrítt stál og hringlaga formið gera mjólkurtankinn mjög auðveldan í þrifum.

Lítil og nett
Rafmagnssnúruna og aukahluti er hægt að geyma á þægilegan hátt í neðsta hluta flóunarkönnunar. Kannan, sem er 13 x 21 cm, passar líka fullkomlega inn í hvaða eldhússkáp sem er.
