Fara í meginmál

Vörunúmer: PUR98D

Miele

Eyjuháfur

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Eyjuháfur frá Miele úr ryðfríu stáli, sem er um það bil 90 cm breiður og með LED lýsingu. Eyjuháfurinn er mjög öflugur eða 650 m3/h á booster stillingu og hægt er að nota hann bæði til útblásturs og hringblásturs. Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli og má fara í uppþvottavél. Eyjuháfurinn sjálfur er öruggur og auðveldur í þrifum. 

524.990 kr.

Sérpöntun

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

CleanCover 

Auðveld og örugg þrif á innrarými

Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Fitufilter úr ryðfríu stáli

Fagurfræði og góð hönnun

Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli sem virkar frábærlega við að fjarlægja fitu. Innbyggð fallvörn tryggir örugga notkun og verndar helluborðið gegn skemmdum. Ystu lög og rammi filtersins eru úr hágæða ryðfríu stáli. Filterinn heldur hágæða útliti sínu í langan tíma og engin sjáanleg litabreyting verður á honum þegar hann er þrifinn í uppþvottavél.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Virkur AirClean kolafilter

Algerlega lyktarlaust eldhús

Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri getur þú notað virkan kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Þessum einnota filter þarf að skipta út reglulega.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Miele sérsmíði

Sérsniðnar lausnir frá Miele

Óskir viðskiptavina eru forgangskröfur hjá Miele. Hafa verður marga þætti í huga við val á háfi, til dæmis óskir varðandi hönnun, lengd tengibúnaðs, uppstillingu í herbergi, tegund eldamennsku, hæð notanda og aðrar sérkröfur. Háfinn er hægt að fá sérsmíðaðann eftir þínum þörfum.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Öflugur, hágæða mótor

Sérstaklega öflugur

Háfurinn er með hágæða miðflótta viftu sem er með sogi á tveimur hliðum. Þessar öflugu einingar tryggja kraftmikil loftskipti öllum stundum auk hámarks sogkrafts. Viftan er þægilega lágvær, þrátt fyrir það hversu öflug hún er.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Handgert í Þýskalandi

Hver Miele háfur er einstakur

Næstum allir Miele háfar eru þróaðir og framleiddir í verksmiðju Miele í Arnsberg, Þýskalandi og eru fyrir mestan part handgerðir. Hver háfur er einstakur. Á hverju stigi framleiðslunnar er þörf fyrir ákveðna verkkunnáttu handverksfólks: allt frá því að móta stálið að því að sjóða það saman og slípa. Skuldbinding starfsfólks, kunnátta þeirra, sköpunarkraftur og löngun til að skara fram úr hefur haft mikil áhrif á þá stöðu sem Miele hefur á markaðinum í dag.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

Öryggisvirkni 

Öryggið alltaf sett á oddinn

Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.