
Innbyggð vifta fyrir mínimalísk eldhús
ERA C er algerlega innbyggð vifta sem ætluð er til uppsetningar í efri skápa. Viftan hentar einstaklega vel inn í eldhús sem eru með mínimalískum stíl og er hönnuð af Elica Design Center. ERA C er úr ryðfríu stáli og mögulegt er að setja hana upp annað hvort fyrir útblástur eða hringblástur.

Náttúruleg og áhrifarík LED lýsing
Lýsingu og afli viftunnar er stjórnað með einföldum þrýstitökkum. LED lýsingin gefur náttúrulega og áhrifaríka birtu sem skín beint niður á helluborðið og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Auðvelt er að fjarlægja filtera og setja þá aftur á sinn stað. Kolafilter er notaður ef ERA C er sett upp fyrir hringblástur.
