Fara í meginmál

Vörunúmer: TR93BL

Smeg

Eldavél með gasbrennurum - Victoria

Eldavél úr Victoriu línu Smeg sem er 90 cm á breidd, með 3 rafmagnsofnum og 6 gasbrennurum.

859.990 kr.

Sérpöntun

Eldavél með gasbrennurum - Victoria

Ástríða fyrir hefðum og smáatriðum

Fagurfræði Victoria línunnar er tileinkuð fólki sem vill hlýlegt eldhúsrými sem tekur vel á móti því. Þeim sem vilja skapa andrúmsloft sem er uppfullt af friðsæld, gleði og hlátri, þar sem tíminn virðist standa í stað. Innblástur línunnar kemur frá "Elisabeth" eldavélinni, þeirri fyrstu sem Smeg framleiddi árið 1948 og töfrar fram nostalgíska sveitarómantík. Línan sameinar tímalausa, klassíska hönnun og einstaka fegurð.

Eldavél með gasbrennurum - Victoria

Skemmtileg eldavél fyrir fjölhæfa eldamennsku 

Möguleikarnir eru óteljandi og mögulegt að elda marga rétti við mismunandi aðstæður en á sama tíma í vélinni.  Ofnarnir eru þrír, þar af tveir blástursofnar og einn grillofn. Blástursviftur tryggja jafna hitadreifingu og eldun matvæla á öllum fjórum hæðum blástursofnanna. Grillofninn er minni og hentar fullkomlega fyrir matvæli sem á að grilla eða gratínera. Eldavélin er kæld á öllum hliðum og helst stjórnborð, handföng auk aðliggjandi skápa þar af leiðandi alltaf kalt viðkomu.

Eldavél með gasbrennurum - Victoria

Eldavél með gasbrennurum

Á vélinni eru fjölbreyttar stærðir gasbrennara með emeleringu fyrir mismunandi notkun og sterkbyggðar pottjárnsgrindur. Litlir gasbrennarar gera þér kleift að elda viðkvæm matvæli hægt og rólega, á meðan öflugir WOK brennarar henta fullkomlega fyrir mikið magn af mat og hraða upphitun. Kveikt er á loga á þægilegan hátt með rafmagnskveikju. Stjórntakka er þrýst niður, snúið og haldið niðri með annarri hönd í nokkrar sekúndur til að kveikja á tilheyrandi brennara. Helluborð eldavélarinnar er djúpt og sérstaklega hannað til þess að geta tekið við dálitlum vökva sem getur flætt upp úr pottum og pönnum við eldamennsku. Auk þess er vélin með öryggisventli sem lokar fyrir gasflæði til vélarinnar t.d. ef gaslogi slokknar tímabundið vegna uppúrsuðu eða gegnumtrekks.

Eldavél með gasbrennurum - Victoria

Einföld þrif fyrir hámarks hreinlæti

Vapor hreinsikerfið notar gufu til þess að losa um matarleifar og óhreinindi af yfirborði ofnrýmisins, þannig að auðvelt sé að þrífa leifarnar í burtu. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auðvelt er að setja toppgrill ofnsins niður og þrífa loftið þar fyrir ofan. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra. Allt ofantalið auðveldar þína vinnu við þrif á ofninum.