Fara í meginmál

Vörunúmer: PRF0120352A

Elica

EASY UX

EASY eyjuháfur frá Elica með möttum svörtum kúpli. Háfurinn er fágaður, nettur og hangir í vírum niður úr loftinu. Hönnun háfsins er stílhrein og passar hann þar af leiðandi vel inn í margs konar umhverfi. Eyjuháfurinn er hringrásandi, með fallegri LED lýsingu og þægilegu stjórnborði með snertitökkum. 

Hönnun: FABRIZIO CRISÀ

189.990 kr.

Ekki til á lager

EASY UX

Minimalískur stíll og vandað efnisval 

Vandað efnisval og einfalt form er hvað mest einkennandi fyrir EASY UX. Háfurinn er hannaður af FABRIZIO CRISÀ og eru þrenns konar kúplar fáanlegir; mattur svartur, hvítur og ryðfrítt stál. Þrjú stök LED ljós eru staðsett neðst á háfnum, en þau skína beint niður á helluborðið og veita bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. EASY UX er með einkennandi nútímalegum og hreinum línum og passar þar af leiðandi vel inn í margs konar umhverfi. 

EASY UX

Stílhreinn háfur fyrir opin rými

Samhliða vinsældum opinna rýma þar sem eldhús eru tengd við setustofu, hefur orðið vinsælla að setja upp háfa sem skyggja sem minnst á útsýnið. Uppsetningarmöguleikar EASY UX eru tvenns konar. Annars vegar er hægt að hengja hann upp á vegg og hins vegar er hægt að hafa hann hangandi í vírum niður úr loftinu. Hangandi háfar eru mjög léttir á að líta og sóma sér þar af leiðandi mjög vel uppsettir yfir helluborði á eyju í eldhúsinu. Háfurinn er hringrásandi, stjórnborð með snertitökkum er einfalt í notkun og fjórar aflstillingar í boði. Einnig er mögulegt að kaupa fjarstýringu, sem stýrir öllum stillingum háfsins, til þæginda.

EASY UX

Einföld þrif og LongLife kolafilter

Regluleg þrif háfsins tryggja ekki aðeins hreinlæti í eldhúsinu, heldur einnig lengri líftíma vörunnar.  Filterar EASY UX eru staðsettir fyrir ofansvartan stílhreinan svartan skjöld. Aðgengi að bæði fitufilterum úr áli og LongLife kolafilterum er einfalt, auðvelt er að fjarlægja filterana og setja þá aftur á sinn stað. LongLife kolafiltera má endurnýta með því að þrífa þá í uppþvottavél 2 til 3 hvern mánuð. Líftími kolafiltersins verður allt að þrjú ár með þessu móti og komist verður hjá tíðum og eyðslusömum útskiptum filtera.