
Innbyggð vifta fyrir mínímalísk eldhús
CIAK er algerlega innbyggð vifta sem ætluð er til uppsetningar í efri skápa. Viftan hentar einstaklega vel inn í eldhús sem eru með mínímalískum stíl og er hönnuð af Elica Design Center. CIAK er úr ryðfríu stáli og gleri, en mögulegt er að setja hana upp annað hvort fyrir útblástur eða hringblástur.

Útdraganleg vifta með LED lýsingu
Við notkun er viftan dregin út og henni stjórnað með einfaldri sleðastýringu. LED lýsingin gefur náttúrulega og áhrifaríka birtu sem skín beint niður á helluborðið og veitir bestu mögulegu sýn yfir vinnuaðstöðuna. Auðvelt er að fjarlægja filtera og setja þá aftur á sinn stað.
