
Svartir kaffidrykkir: hrein ánægja
C3 kaffivélin leggur áherslu á svart kaffi sem hún útbýr á fullkomin hátt. Hún hellir upp á kaffi með karakter og stútfullt af ilmi, þökk sé tækni eins og Púlsuppáhellingu (P.E.P.®) og uppáhellara í fullri stærð. Grófleiki mölunar, sem hægt er að stilla frá mildu til sterks í sjö stigum, fullkomnar uppáhellingarferlið. Vélin getur hellt upp á tvo bolla í einu og því stendur ekkert í vegi fyrir því að njóta sameiginlegrar kaffistundar – hellt er upp á valin kaffidrykk í tveimur uppáhellingum.

Búðu til ljúffengt kaffi á augabragði
Einfaldleiki sem er eitt aðaleinkenni C3 kaffivélarinnar birtist til að mynda í þægilegu Easy Control stjórnborði með fjórum tökkum. Skjárinn skýrir sig sjálfur og gerir þér auðvelt að hella upp á ljúffengan kaffibolla með einni snertingu. Mögulegt er að tengja vélina við J.O.E.® appið með því að kaupa Wi-Fi tengi og auka þannig þægindi við einstaklingsbundnar stillingar. Notendaviðmót appsins gerir þér kleift að stilla styrkleika kaffis, vatnsmagn eða hitastig kaffidrykksins á einfaldan hátt auk þess að geyma persónulega notendaprófíla.

Fáguð og nett hönnun
C3 kaffivélin státar af fágaðri og tímalausri bylgjuhönnun sem á rætur að rekja til Premium kaffivéla: bogadregið mynstur setur svip sinn bæði á vatnstankinn og grindina á affallsbakkanum. Bylgjuhönnunina má einnig sjá á kúpt-íhvolfri framhliðinni sem setur punktinn yfir i-ið og saman myndar allt þetta fallega heild. Skír fagurfræði, skapandi einfaldleiki og nett stærð kaffivélarinnar mun gleðja hvern þann sem hefur dálæti á fallegri hönnun og svörtu kaffi.
