Fara í meginmál

Vörunúmer: TSF03PGEU

Smeg

Brauðrist 4 sneiðar - 50's Retro Style

Einstaklega falleg brauðrist úr 50´s línu SMEG. Stjórnborðin eru tvö, stýra sitthvoru hólfa parinu og eru algerlega óháð hvor öðru. Brauðristin tekur allt að 4 brauðsneiðar í einu og er með stillingum fyrir ristun á frosnu brauði, upphitun og beyglu stillingu.

44.990 kr.

Sérpöntun

Brauðrist 4 sneiðar - 50's Retro Style

Njóttu þess að rista uppáhalds brauðmetið þitt

Morgunmatur eða hádegispása, dögurður eða fordrykkur, hvert sem tilefnið er mun Smeg brauðristin gera það ánægjulegra. Mögulegt er að rista allt að 4 sneiðar í einu í brauðristinni, en hún er með fjórum 36 mm breiðum hólfum. Stjórnborðin eru tvö, stýra sitthvoru hólfa parinu og eru algerlega óháð hvor öðru. Þar af leiðandi er annað hvort hægt að rista í einu hólfapari eða báðum í einu, með sömu eða sitthvorri stillingunni. Sjálfvirk miðjujöfnun tryggir jafna ristun brauða af ólíkum stærðum og að ristun lokinni skýst brauðið sjálfkrafa upp. Þegar þú hefur fundið brauðrist sem þú elskar, munt þú nota hvert tækifæri sem gefst til þess að nota hana.

Brauðrist 4 sneiðar - 50's Retro Style

Hönnun og tækni

Ristun er hægt að stilla eftir þörfum á skalanum 1-6 og kemur brauðristin með þremur forstilltum kerfum; upphitun, afþýðingu og beyglu stillingu. Upphitun hitar brauð upp sem hefur þegar verið ristað eða þarf að rista meira, afþýðing er fyrir ristun á frosnu brauði og beyglu stilling ristar aðeins aðra hlið brauðsins í báðum hólfum. Brauðristin stendur örugglega á stömum fótum og mögulegt er að festa rafmagnskapalinn undir botninn á tækinu. Affallsbakka úr ryðfríu stáli er auðvelt að fjarlægja og tæma. Auk þess er auðvelt að fjarlægja minni brauðsneiðar úr tækinu á öruggan hátt með því að ýta þeim ofar með vogarstöng.

Brauðrist 2 sneiðar - 50's Retro Style

Alþjóðleg verðlaun 

Viðtökur 50´s smátækjanna frá Smeg hafa verið frábærar og hafa þau unnið til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna. Smeg brauðristar hafa hlotið Good Design Awards, IF Design Awards og Red Dot Design Awards.