%2520einungis%2520fr%25C3%25A1%2520Miele-1c05fa73-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
SmartSelect
Auðveld notkun með SmartSelect
Aflstillingar og tíma er hægt að stilla með ótrúlega auðveldum og hröðum hætti með SmartSelect. Talnaborð með gulu ljósi er auðvelt álestrar frá hvaða sjónarhorni sem er. Tímastillingar eru auðveldari með SmartSelect, þar sem "Tímastilli" og "Vifta slekkur á sér sjálfvirkt" er hægt að stilla inn sitt í hvoru lagi.

ECO mótor
Hjarta hvers háfs
Mótorinn er hjarta og sál hverrar viftu. Sumir Miele háfar og viftur eru með ECO mótor. Hann notar jafnspennu og er orkusparnaður allt að 50% miðað við venjulegan mótor. ECO mótorar eru mjög hljóðlátir en samt eins öflugir og mótorar í öðrum Miele háfum og viftum.

FlameGuard
Vernd gagnvart gasloga
Mögulegt er að setja Smartline borðviftuna upp við hliðina á öllum Smartline raðeiningum. Þegar borðviftan er sett upp við hliðina á raðeiningum með gasbrennurum, er nauðsynlegt að nota FlameGuard. FlameGuard er hlíf sem er yfir borðviftunni. Hún opnast sjálfkrafa, er haldið á réttum stað með segulkrafti og mögulegt er að nota hana báðu megin við borðviftuna. FlameGuard kemur í veg fyrir að gasloginn sogist niður í borðviftuna
