Fara í meginmál

Vörunúmer: DAD4941

Miele

Borðvifta - Levantar

Miele tæki eru með 5 ára ábyrgð – enginn auka kostnaður

Borðvifta frá Miele með dimmanlegri LED lýsingu og snertitökkum fyrir þægilega notkun. Notkun er handhæg og knýr mótor viftuna upp og niður úr borði. Fágað og stílhreint lok lokar viftunni þegar hún er í neðstu stöðu. Viftan er mjög öflug og hægt er að nota hana bæði til útblásturs og hringblásturs. Fyrir lyktarlaust loft í eldhúsi er mögulegt að láta háfinn ganga í 5 - 15 mín að eldun lokinni og láta hann slökkva sjálfkrafa á sér að þeim tíma liðnum. Viftan er 93,6 cm breið og passar fullkomlega með helluborðum KM7594 FL og KM7697 FL.

679.990 kr.

Ekki til á lager

Borðvifta - Levantar

Con@ctivity

Snjöll stjórnun

Með Con@ctivity getur þú einbeitt þér algjörlega að eldamennskunni. Þetta er vegna þess að háfurinn og helluborðið eiga í þráðlausum samskiptum við hvort annað. Helluborðið sendir upplýsingar um aflstillingar sínar til háfsins, sem aðlagar sogkraft sinn sjálfkrafa eftir þeim og tryggir hámarks loftgæði öllum stundum. Samskiptin milli helluborðs og háfs er komið á annað hvort með ZigBee (Con@ctivity 2.0) eða WiFi (Con@ctivity 3.0).

Borðvifta - Levantar

CleanCover 

Auðveld og örugg þrif á innrarými

Miele CleanCover er staðsett bak við fitufilter: engin hætta er á að komast í snertingu við beittar brúnir málma, raflagnir eða mótor. CleanCover yfirborðið bak við filterinn er viðloðunarfrítt, einstaklega slétt og fellt og þar af leiðandi mjög auðvelt í þrifum. Ótrúlega þægilegt og öruggt.

Borðvifta - Levantar

Jaðarsog

Fallegir panelar í stað fitufiltera úr stáli

Í háfum og viftum með jaðarsogi eru venjulegu stál fitufilterarnir í felum á bak við fallega panela. Gufan sem myndast við eldamennskuna sogast inn í háfinn við jaðar panelsins.

Eyjuháfur - Puristic Ed. 6000

ECO mótor

Hjarta hvers háfs

Mótorinn er hjarta og sál hvers háfs. Sumir Miele háfar er með ECO mótor. Hann notar jafnspennu og er orkusparnaður allt að 50% miðað við venjulegan mótor. ECO mótorar eru mjög hljóðlátir en samt eins öflugir og mótorar í öðrum Miele háfum og viftum.

Borðvifta - Levantar

Fitufilter úr ryðfríu stáli

Fagurfræði og góð hönnun

Fitufilterinn er gerður úr 10 lögum af ryðfríu stáli sem virkar frábærlega við að fjarlægja fitu. Innbyggð fallvörn tryggir örugga notkun og verndar helluborðið gegn skemmdum. Ystu lög og rammi filtersins eru úr hágæða ryðfríu stáli. Filterinn heldur hágæða útliti sínu í langan tíma og engin sjáanleg litabreyting verður á honum þegar hann er þrifinn í uppþvottavél.

Borðvifta - Levantar

Virkur AirClean kolafilter / Long-Life kolafilter

Algerlega lyktarlaust eldhús

Þegar háfurinn er notaður í hringblæstri þarft þú nota virkan kolafilter eða Long-life kolafilter til þess að fjarlægja lykt sem myndast við eldamennsku. Virkur kolafilter er einnota og þarf að skipta út reglulega, en Long-life filter er hægt að þrífa og er margnota.

Borðvifta - Levantar

Öryggisvirkni 

Öryggið alltaf sett á oddinn

Háfurinn slekkur sjálfkrafa á sér eftir 10 klukkustundir. Þetta tryggir hámarks öryggi jafnvel ef um stýrivillu er að ræða.