Fara í meginmál

Vörunúmer: 559120WGO

Schock

Blöndunartæki, útdraganlegt - KAVUS

Gullfallegt "White gold" blöndunartæki með útdraganlegum stút.

59.990 kr.

Blöndunartæki, útdraganlegt - KAVUS

Fágað og fallegt blöndunartæki með hljóðdempandi tækni

KAVUS blöndunartæki frá Schock fangar athyglina í eldhúsinu. Kraninn er hár með einkennandi löngum, bognum hálsi sem gefur afskaplega fágað og fallegt útlit. Blöndunartækið hentar mjög vel með stórum vöskum, það er útdraganlegt og mögulegt er að snúa því í 360°. Útdraganlegur stútur eykur sveigjanleika við notkun. Auðveldara verður að skola af leirtaui, fylla stóra potta af vatni og að ná út í öll horn vasksins. Í dag eru eldhús oft aðalsamkomustaður heimilisins, þau hönnuð sem opin rými með borðstofu og getur hljóð frá rennandi krana þar af leiðandi verið truflandi. KAVUS blöndunartækið er með hljóðdempandi tækni sem framkallar mjúka og hljóðláta vatnsbunu. Vatnsflæðið skerðist ekkert, þrátt fyrir hljóðdempunina, og vatnið slettist áberandi minna. Áhugaverð tækni sem gerir þér kleift að eiga friðsama stund við eldhúsverkin.