
Kjarnhitamælir
Fullkomin eldun án eftirlits
Eldun með kjarnhitamæli tryggir besta árangurinn: þú getur eldað kjöt, fisk og alifuglakjöt með fullkominni nákvæmni með kjarnhitamæli frá Miele. Og það er óþarfi að sitja yfir ofninum vegna þess að skjárinn gefur upp eftirstöðvar eldunartíma og þar með hvenær maturinn verður tilbúinn. Eldunartíma lýkur þegar stilltum kjarnhita er náð.

Auto kerfi
Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður
Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega á stuðlariti, fyrir kjöt t.d. frá "rare" til "well done".

Pyrolytic sjálfhreinsikerfi og PyroFit aukahlutir
Áreynslulaus þrif
Gerir lífið auðveldara: pyrolytic sjálfhreinsikerfið breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborði ofnrýmisins án ummerkja – sem minnkar þína vinnu við þrif á ofninum. Þetta þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba ofninn með sterkum hreinsiefnum. Til þægindaauka mega sumir aukahlutir vera inni í ofninum á meðan sjálfhreinsun fer fram, en athugið að þetta er mismunandi á milli módela.

FlexiClip brautir
Ákjóanlegasta aðgengi að matnum þínum
Snúðu matnum eða dreyptu á hann feiti meðan á ofnsteikingu stendur á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu: með útdraganlegum FlexiClip brautum, getur þú auðveldlega dregið bökunarplötur eða grillgrindur alveg út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna þig. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og mögulegt er að staðsetja þær á mismunandi hæðum allt eftir þínum þörfum, en Miele er með einkaleyfi á þessu kerfi.

76 L ofnrými
Rúmgóður og sveigjanlegur
Stórt rými: Ofninn er með ríflegu 76 L ofnrými og er fjöldi hæða í ofnrýminu 5. Mögulegt er að elda heilar máltíðir fyrir allt að 10 manns á sama tíma, nægt rými er fyrir heilan fisk eða kalkún.

Köld framhlið
Eina sem hitnar er maturinn
Miele ofnar eru kældir á öllum hliðum. Þetta tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Marglaga panelar einangra ofnhurðina á árangursríkan hátt og tryggja lágt hitastig fyrir utan hana, en þetta veitir öryggi og verndar gegn bruna.

SoftOpen & SoftClose
Mjúkar hurðarhreyfingar
Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.
