
Auto kerfi
Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður
Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega á stuðlariti, fyrir kjöt t.d. frá "rare" til "well done".

Pyrolytic sjálfhreinsikerfi og PyroFit aukahlutir
Áreynslulaus þrif
Gerir lífið auðveldara: pyrolytic sjálfhreinsikerfið breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborði ofnrýmisins án ummerkja – sem minnkar þína vinnu við þrif á ofninum. Þetta þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba ofninn með sterkum hreinsiefnum. Til þægindaauka mega sumir aukahlutir vera inni í ofninum á meðan sjálfhreinsun fer fram, en athugið að þetta er mismunandi á milli módela.

FlexiClip brautir
Ákjóanlegasta aðgengi að matnum þínum
Snúðu matnum eða dreyptu á hann feiti meðan á ofnsteikingu stendur á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu: með útdraganlegum FlexiClip brautum, getur þú auðveldlega dregið bökunarplötur eða grillgrindur alveg út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna þig. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og mögulegt er að staðsetja þær á mismunandi hæðum allt eftir þínum þörfum, en Miele er með einkaleyfi á þessu kerfi.

76 L ofnrými
Rúmgóður og sveigjanlegur
Stórt rými: Ofninn er með ríflegu 76 L ofnrými og er fjöldi hæða í ofnrýminu 5. Mögulegt er að elda heilar máltíðir fyrir allt að 10 manns á sama tíma, nægt rými er fyrir heilan fisk eða kalkún.

Köld framhlið
Eina sem hitnar er maturinn
Miele ofnar eru kældir á öllum hliðum. Þetta tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Marglaga panelar einangra ofnhurðina á árangursríkan hátt og tryggja lágt hitastig fyrir utan hana, en þetta veitir öryggi og verndar gegn bruna.

SoftOpen & SoftClose
Mjúkar hurðarhreyfingar
Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.
