
Blær fortíðar endurvakinn
Cortina línan er hönnuð í samstarfi við járnsmiðsmeistarann Giancarlo Candeago. Innblásturinn er fenginn frá handverksmeisturum ítalskra fjalla til forna og sköpunarverka þeirra úr smíðajárni. Stíllinn endurspeglar einstakar útlínur fjallakofa í Ölpunum og arkítektúr forn ítalskra híbýla. Vandað efnisval og notkun lita gefa tækjunum óviðjafnanlega heillandi útlit. Tækin eru fáguð og vekur hönnun þeirra upp töfra þessarar gömlu smíðajárns handiðnar.

Elektrónísk hitastýring og áreynslulaus þrif
Ofninn er með elektrónískri hitastýringu sem heldur nákvæmu hitastigi í ofnrýminu og gefur möguleika á fullkominni eldun rétta sem eru viðkvæmir fyrir hitabreytingum. Pyrolytic sjálfhreinsikerfið hitar ofnrýmið upp í 500°C og breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborðinu. Þetta auðveldar þrif á ofninum og þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba hann að innan með sterkum hreinsiefnum. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra.

Aukið öryggi og hámarks þægindi
Blástursofninn er með mjúklokun sem dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Hurðin lokast þar af leiðandi bæði varlega og hljóðlega. Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Ofninn er auk þess með kaldri framhlið og kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.
