Fara í meginmál

Vörunúmer: SFP68C1TAO

Smeg

Blástursofn með pyro - Colonial

Blástursofn úr Colonial línu Smeg með sjálfhreinsikerfi, elektrónískri hitastýringu og mjúklokun. Litur ofnsins er blanda af anthracite og antík brass.



279.990 kr.

Sérpöntun

Eldavél með gasbrennurum - Colonial

Tækifæri til að endurupplifa hlýleika og nærveru eldhúsa fyrri tíma 

Fáguð og virðuleg hönnun, innblásin af klassískum nýlendu stíl, sem ber mann aftur til fortíðar. Tækin í Colonial línunni endurskapa þá hlýlegu stemningu og notalegu nærveru sem mörgum finnst einkennandi fyrir eldhús fyrri tíma. Línan er hönnuð fyrir fólk sem kann að meta þokkafullan, vandaðan og vingjarnlegan stíl og vill skapa einstakt andrúmsloft í eldhúsinu. Smekkleg hönnun fyrir alla sem vilja bæta við vott af fáguðum glæsibrag inn í hjarta heimilisins.

Blástursofn með pyro - Colonial

Elektrónísk hitastýring og áreynslulaus þrif

Ofninn er með elektrónískri hitastýringu sem heldur nákvæmu hitastigi í ofnrýminu og gefur möguleika á fullkominni eldun rétta sem eru viðkvæmir fyrir hitabreytingum. Pyrolytic sjálfhreinsikerfið hitar ofnrýmið upp í 500°C og breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborðinu. Þetta auðveldar þrif á ofninum og þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba hann að innan með sterkum hreinsiefnum. 

Blástursofn með pyro - Colonial

Aukið öryggi og hámarks þægindi

Blástursofninn er með mjúklokun sem dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Hurðin lokast þar af leiðandi bæði varlega og hljóðlega. Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru hálf-útdraganlegar og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Ofninn er auk þess með kaldri framhlið og kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.