
Quick & Gentle
Óendanlegir möguleikar á aflstillingum
Nýji eiginleikinn Quick & Gentle gerir þér kleift að sameina venjulegt ofnkerfi með örbylgjukerfi og eru stillingarmöguleikar óendanlegir - sérhannað fyrir þínar þarfir. Þetta sparar tíma og tryggir að maturinn er eldaður nákvæmlega eins og þér finnst gott. Nýstárlegur rafeindabúnaður gerir þetta mögulegt – fyrir meiri sveigjanleika við eldamennsku hversdagsins.

Ofnrými úr ryðfríu stáli með PerfectClean
Sérstök viðloðunarfrí áferð
Viðloðun matvæla við ofnrýmið á meðan eldun fer fram er mun minni. Ástæðan er að ofnrýmið er úr hágæða ryðfríu stáli með sérstöku lérefts mynstri. Yfirborðið er einnig með PerfectClean húð, sem gerir það sérstaklega auðvelt í þrifum – þökk sé háþróuðu yfirborðinu, getur þú notið meira hreinlætis og sparað tíma við þrif.

Kjarnhitamælir
Fiskur og kjöt eldað með nákvæmum hætti
Ennþá hrátt eða of þurrt? Með innbyggða kjarnhitamælinum, getur þú mælt kjarnhitastig fisks eða kjöts til þess að tryggja að maturinn sé eldaður nákvæmlega eins og þú vilt. Eftirstöðvar eldunartíma á skjánum segir til um hvenær steikin þín verður tilbúin – þannig að þú getur farið út úr eldhúsinu þegar þér hentar. Kjarnhitamælirinn er ótrúlega einfaldur í notkun og er útkoman safarík og bragðmikil.

3 in 1
Eitt tæki, fjölmargir möguleikar
Töfraðu fram dásamlega rétti jafnvel þótt eldhúsrýmið sé takmarkað: þú getur eldað matvæli á venjulegum ofnkerfum eða venjulegum örbylgjukerfum. Einnig er hægt að elda á ofnkerfi með örbylgju fyrir fullkominn árangur á skömmum tíma. Fjöldi mögulegra eldunarkerfa sér fyrir fullkominni stillingu fyrir hvaða aðstæður sem er- hvort sem þú vilt hita upp, elda eða afþýða matinn þinn.

Auto kerfi
Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður
Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega á stuðlariti, fyrir kjöt t.d. frá "rare" til "well done". Og þegar örbylgju er bætt við, verða réttirnir þínir tilbúnir á jafnvel enn skemmri tíma.

Quick MW
Veldu hámarksafl strax frá byrjun
Með Quick Start, hraðvalstakka fyrir örbylgjukerfi, getur þú valið hámarksafl strax frá byrjun með einum takka á stjórnborði. Þetta gerir þér kleift að hita matvæli og drykki hratt án þess að velja hitastig. Auðvelt er að endurstilla fyrirfram ákveðnu tímalengdina sem kerfið býður upp á eftir þínum þörfum - til dæmis, ef þú vilt hita upp tebolla á kvöldin eða hita upp barnamat.

Poppkornskerfi
Ferskt poppkorn með einni snertingu
Hvernig yrði góð bíómynd án poppkorns? Með sjálfvirka poppkornskerfinu getur þú búið til dásamlegt poppkorn í örbylgjuofninum heima hjá þér með einni snertingu á takka á stjórnborði. Tímalengd og wött eru miðuð við 100 g poka af örbylgjupoppi. Ef þú vilt stökkt poppkorn, getur þú aðlagað tímalengd að þínum þörfum.

MotionReact
Bregst við þegar þú nálgast
Þú getur stjórnað ofninum þínum án þess að ýta á takka eða snerta hann yfirhöfuð. Þegar þú nálgast tækið, kvikna ljós í ofnrými eða ljós á stjórnborði. Einnig er mögulegt að láta hljóðmerki sem gefa til kynna lok eldunarkerfis slokkna þegar þú nálgast ofninn – til þægindaauka. Ef tækið er í gangi á bakvið lokaða innréttingarhurð, getur MotionReact sent frá sér hljóðmerki og slökkt á tækinu er þörf er á.

LED ljóskastari
Besta mögulega lýsing
Þökk sé viðhaldsfríum eiginleikum, lýsir LED ljóskastarinn ofnrýmið fullkomlega upp á endingargóðan hátt. Hann er líka sérstaklega orkunýtinn.

Crisp function
Gerir mat stökkan
Sum matvæli þurfa fallegt stökkt yfirborð fyrir þessa fullkomnu lokaáferð: best er til dæmis að elda kartöfluflögur, pizzu og franskar kartöflur í ofnrými með þurrum hita. Þessu er stjórnað með því að minnka rakann í ofninum. Þú getur valið stillinguna Crisp function eina og sér.

SoftOpen & SoftClose
Mjúkar hurðarhreyfingar
Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.
