-83f02758-1400x787.jpg&w=3840&q=100)
Hagnýtni rennur saman við fagurfræði, þar sem myrkur verður að ljósi
Minimalískur stíll einkennir Dolce Stil Novo línuna en innblástur hennar kemur frá mikilvægri bókmenntahreyfingu, tileinkaðri ástarljóðum, sem átti sér stað á Ítalíu á 13. öld. Hágæða efnisval, einlitt yfirborð og fallegir kopar skrautlistar, skapa bæði tímalaust og fágað útlit. Tæki með afgerandi stíl og búin nýjustu tækni sem eru auðveldlega í brennidepli í því rými sem þau standa.

Kjarnhitamælir fyrir fullkomna eldun
Fullkomin nákvæmni við eldun t.d. kjöts, fisks og alifuglakjöts næst með notkun kjarnhitamælis. Skjárinn gefur upp raunhitastig sem kjarnhitamælirinn nemur og það hitastig sem notandinn vill að matvælin nái. Óþarfi er að sitja yfir ofninum á meðan á eldun stendur, eldunartíma lýkur þegar stilltum kjarnhita er náð og besti mögulegi árangur við eldun er tryggður.

Notendavænt stjórnborð með nútímalegri tækni
Stjórnborð ofnsins er með fullkomnum TFT lita- og snertiskjá. Sjálfvirk kerfi gera þér kleift að elda eins og atvinnumatreiðslumaður og tryggja árangursríka eldun í hvert sinn. Hægt er að vista allt að 10 uppskriftir og stilla sérstaklega eftir þínum þörfum. Einnig er mögulegt að stilla allt að 3 eldunarfasa fyrir ákveðna uppskrift (Multistep cooking). Eldunartækni, ofnkerfi, tímalengd og hitastig er þannig stillt fyrir öll skref og í lok hvers fasa tekur sá næsti við sjálfkrafa. Ofninn er einnig með möguleika sem gerir þér kleift að byrja að elda strax (Instant GO). Valkosturinn hentar sérstaklega vel fyrir frosin matvæli þar sem eldunartíminn nær einnig til forhitunar ofnsins. Auk ofantalins er ofninn með elektrónískri hitastýringu sem heldur nákvæmu hitastigi í ofnrýminu og gefur möguleika á fullkominni eldun rétta sem eru viðkvæmir fyrir hitabreytingum.

Áreynslulaus þrif sem gera lífið auðveldara
Pyrolytic sjálfhreinsikerfið hitar ofnrýmið upp í 500°C og breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborðinu. Þetta auðveldar þrif á ofninum og þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba hann að innan með sterkum hreinsiefnum. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra.

Aukið öryggi og hámarks þægindi
Blástursofninn er með mjúklokun sem dempar hreyfinguna þegar hurðinni er lokað. Hurðin lokast þar af leiðandi bæði varlega og hljóðlega. Útdraganlegar brautir veita ákjósanlegt aðgengi að matnum í ofninum. Þær gera þér kleift að snúa grænmetinu eða dreypa feiti á steikina á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og auðvelt er að draga plötur og grindur út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna sig. Ofninn er auk þess með kaldri framhlið og kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Allt ofantalið veitir aukið öryggi, þægindi við notkun og verndar gegn bruna.
