
Moisture Plus
Ákjósanlegur árangur með meiri raka
Auðveldasta leiðin til þess að ná fullkomnum árangri: ýmis eldunarkerfi gefa þér möguleika á því að bæta við meiri raka. Rakastýring tryggir að kjöt fær dásamlega harða skorpu að utan en helst mjúkt og safaríkt fyrir innan skorpuna, einnig fá brauð og bakkelsi fullkomna brúnun en haldast mjúk fyrir innan skorpuna. Þú getur tímastillt ofninn til þess að gefa gufupúst á ákveðnum tímum til þægindaauka. Rakastýringin er einnig notuð í ýmsum sjálfvirkum kerfum.

FoodView
Fylgstu með matnum þínum
Núna getur þú fylgst með matnum í ofninum þínum sama hvar þú ert: myndavél sem er staðsett í toppi ofnrýmisins sýnir þér hvernig maturinn þinn lítur út með snjallforriti í símanum eða spjaldtölvunni þinni. Ef þörf er á, getur þú líka aðlagað stillingar á ofninum með farsímanum þínum. Þetta gefur þér meiri stjórn og þar af leiðandi meira frelsi – auk óviðjafnanlegra þæginda.

Auto kerfi
Áhyggjulaus eldun og árangur gulltryggður
Árangursrík eldun í hvert skipti: með sjálfvirkum kerfum getur þú eldað fjöldann allan af mismunandi réttum á einfaldan hátt. Hvort sem þú ert að fara að baka köku eða elda kjúkling – þá er ekki þörf á því að velja ákveðið eldunarkerfi, hitastig né tímalengd. Stig eldunar er hins vegar hægt að velja sérstaklega á stuðlariti, fyrir kjöt t.d. frá "rare" til "well done".

Þráðlaus kjarnhitamælir
Fullkomin eldun án eftirlits
Eldun með kjarnhitamæli tryggir besta árangurinn: þú getur eldað kjöt, fisk og alifuglakjöt með fullkominni nákvæmni með þráðlausa kjarnhitamælinum sem Miele er með einkaleyfi fyrir. Og það er óþarfi að sitja yfir ofninum vegna þess að skjárinn gefur upp eftirstöðvar eldunartíma og þar með hvenær maturinn verður tilbúinn. Þráðlausi kjarnhitamælirinn er einfaldur í notkun og er geymdur í ofnhurðinni fyrir auðvelt aðgengi hvenær sem er – sem veitir þér aukin þægindi við eldamennskuna.

TwinPower blástursvifta
Hröð upphitun
Með TwinPower blásturviftu í 90 cm ofnum, þarft þú ekki að bíða lengi eftir því að ofninn nái réttu hitastigi – ofninn er forhitaður á örskotsstundu og maturinn þinn getur farið beint inn. Tvö hitaelement og tvær viftur tryggja fullkominn hringblástur heita loftsins inni í ofninum. Þetta sér ekki aðeins til þess að ofninn sé tilbúinn til notkunar á skömmum tíma, heldur tryggir þetta líka jafna eldun og bakstur.

Rotisserie
Eldun á steikarteini
Njóttu dásamlega grillaðs kjúklings úr eigin ofni: þú getur eldað kjúkling og annars konar kjöt á öllum hliðum með steikingarteini sem fylgir með 90 cm breiðum ofni frá Miele – fyrir stökkt yfirborð og safaríkt kjöt. Þessi eldunaraðferð er einnig fullkomin til þess að elda stök rif.

MotionReact
Bregst við þegar þú nálgast
Þú getur stjórnað ofninum þínum án þess að ýta á takka eða snerta hann yfirhöfuð. Þegar þú nálgast tækið, kvikna ljós í ofnrými eða ljós á stjórnborði. Einnig er mögulegt að láta hljóðmerki sem gefa til kynna lok eldunarkerfis slokkna þegar þú nálgast ofninn – til þægindaauka. Ef tækið er í gangi á bakvið lokaða innréttingarhurð, getur MotionReact sent frá sér hljóðmerki og slökkt á tækinu er þörf er á

BrilliantLight
Fullkomin yfirsýn á öllum hæðum
Hágæða LED súlur tryggja að allar hæðir í ofnrýminu eru fullkomlega upplýstar, sem gefur þér bestu yfirsýn á matinn þinn frá öllum hliðum.

FlexiClip brautir
Ákjóanlegasta aðgengi að matnum þínum
Snúðu matnum eða dreyptu á hann feiti meðan á ofnsteikingu stendur á þægilegan hátt og í öruggri fjarlægð frá heitu ofnrýminu: með útdraganlegum FlexiClip brautum, getur þú auðveldlega dregið bökunarplötur eða grillgrindur alveg út úr ofninum án þess að eiga á hættu að brenna þig. Brautirnar eru útdraganlegar að fullu og mögulegt er að staðsetja þær á mismunandi hæðum allt eftir þínum þörfum, en Miele er með einkaleyfi á þessu kerfi.

Crisp function
Gerir mat stökkan
Sum matvæli þurfa fallegt stökkt yfirborð fyrir þessa fullkomnu lokaáferð: best er til dæmis að elda kartöfluflögur, pizzu og franskar kartöflur í ofnrými með þurrum hita. Þessu er stjórnað með því að minnka rakann í ofninum. Þú getur valið stillinguna Crisp function eina og sér.

Pyrolytic sjálfhreinsikerfi og PyroFit aukahlutir
Áreynslulaus þrif
Gerir lífið auðveldara: pyrolytic sjálfhreinsikerfið breytir öllum matarleifum í ösku sem er auðvelt að fjarlægja af yfirborði ofnrýmisins án ummerkja – sem minnkar þína vinnu við þrif á ofninum. Þetta þýðir að óþarfi er að eyða mörgum klukkutímum í að skrúbba ofninn með sterkum hreinsiefnum. Til þægindaauka mega sumir aukahlutir vera inni í ofninum á meðan sjálfhreinsun fer fram, en athugið að þetta er mismunandi á milli módela.

SoftOpen & SoftClose
Mjúkar hurðarhreyfingar
Virkilega eftirtektarvert: hurðin er með einkennandi háþróuðu demparakerfi fyrir vandaða opnun og lokun. Hún opnast í 90° - sem veitir óhindrað aðgengi að matnum í ofnrýminu til þægindaauka.
