Fara í meginmál

Vörunúmer: SF68C1AO

Smeg

Blástursofn - Colonial

Blástursofn úr Colonial línu Smeg sem er með 6 eldunarkerfum, 70 L ofnrými og halógen lýsingu. Falleg analog klukka prýðir stjórnborð og er litur ofnsins blanda af anthracite og antík brass.


199.990 kr.

Sérpöntun

Eldavél með gasbrennurum - Colonial

Tækifæri til að endurupplifa hlýleika og nærveru eldhúsa fyrri tíma 

Fáguð og virðuleg hönnun, innblásin af klassískum nýlendu stíl, sem ber mann aftur til fortíðar. Tækin í Colonial línunni endurskapa þá hlýlegu stemningu og notalegu nærveru sem mörgum finnst einkennandi fyrir eldhús fyrri tíma. Línan er hönnuð fyrir fólk sem kann að meta þokkafullan, vandaðan og vingjarnlegan stíl og vill skapa einstakt andrúmsloft í eldhúsinu. Smekkleg hönnun fyrir alla sem vilja bæta við vott af fáguðum glæsibrag inn í hjarta heimilisins.

Blástursofn - Colonial

Einfölf þrif og köld framhlið

Ofninn er kældur á öllum hliðum sem tryggir að stjórnborð, handföng og aðliggjandi skápar haldast kaldir viðkomu. Þetta veitir bæði öryggi og verndar gegn bruna. Þrif ofnrýmis eru einföld. Ofnrýmið er með yfirborði úr enameli sem hrindir frá sér fitu og er þolið gagnvart efnum með súra eiginleika. Auk þess er mögulegt að fjarlægja innri gler hurðarinnar og þrífa á milli þeirra.