Fara í meginmál

Gæðastefna

Tilgangur

Gæðastefna Eirvíkur inniheldur áherslur félagsins varðandi gæðamál og er sett fram til að þau séu höfð að leiðarljósi í daglegum rekstri. Með gæðastefnunni vill félagið tryggja að gæði og þjónusta sé í samræmi við væntingar viðskiptavina. 

Umfang

Gæðastefna Eirvíkur nær til allra þátta starfseminnar, gæðastjóri ber ábyrgð á að allt starfsfólk fyrirtækisins þekki og skilji stefnuna. Allt starfsfólk félagsins ber ábyrgð á framkvæmd þessarar stefnu.

Markmið

  • Bjóða viðskiptavinum upp á vandaðar vörur og faglega þjónustu.
  • Vinna í samræmi við lög og reglugerðir sem fyrirtækinu er gert að starfa samkvæmt. 
  • Tryggja rétt flæði fyrirspurna, erinda og ábendinga frá viðskiptavinum, birgjum og starfsfólki.
  • Gæta að hagkvæmni, framförum og umbótum í rekstri.
  • Viðhalda og efla fagþekkingu starfsfólks.
  • Styðja við frumkvæði starfsfólks og veita því hvatningu í starfi.
  • Tryggja öruggt og heilnæmt vinnuumhverfi.

Leiðir að markmiði

  • Reka gæðakerfi sem inniheldur stefnur, reglur og ferla sem tryggja faglegan rekstur.
  • Gæðastjóri ráðfærir sig við gæðahóp og yfirfer gæðamál hjá fyrirtækinu að minnsta kosti tvisvar á ári. 
  • Halda reglulegar kynningar um stöðu gæðamála innan fyrirtækisins með það að markmiði að fræða starfsfólk um gæðamál og ábyrgð þeirra hvað þau snertir.

Endurskoðun

Gæðastefnuna skal endurskoða á þriggja ára fresti eða oftar ef þörf krefur.